Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

988/2015

Reglugerð um (75.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2015, frá 12. júní 2015, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/327 frá 2. mars 2015 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 að því er varðar kröfur um setningu á markað og skilyrði fyrir notkun aukefna úr efnablöndum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 46, frá 20. ágúst 2015, bls. 820.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. október 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica