REGLUGERÐ
um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna
á lögbýlum.
1. gr.
Þar sem svo háttar
til að hagkvæmara er að mati sveitarstjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum
bæjum í dreifbýli, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 81/1991, um vatnsveitur
sveitarfélaga, með síðari breytingum, er heimilt að greiða framlög úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna stofnkostnaðar við vatnsveitu á vegum eigenda
einstakra lögbýla.
Ákvæði reglugerðar
þessarar ná til allra jarðeigna í landinu þar sem landbúnaður er stundaður í
þeim mæli að talist getur búrekstur eða þáttur í búrekstri, að undanskildum
þeim jörðum og jarðarhlutum sem liggja innan skipulagðra þéttbýlissvæða
sveitarfélaga. Framlög eru ekki veitt til framkvæmda á lögbýlum sem eigi hafa
verið setin tvö ár eða lengur næst á undan framkvæmdaári eða eru nytjuð frá
öðrum lögbýlum nema byggingar á jörðinni séu nytjaðar til búrekstrar sem krefst
aðgangs að vatni eða fyrir liggi heimild til bústofnunar þar samkvæmt
jarðalögum, nr. 65/1976, með síðari breytingum.
Heimilt er að veita
framlög, þar sem svo háttar til að vatnsveita þjónar bæði lögbýli og fasteignum
sem ekki falla undir reglugerð þessa, í réttu hlutfalli við eignarhald.
2. gr.
Stjórn Bændasamtaka
Íslands gerir í lok hvers árs tillögur til félagsmálaráðuneytisins um úthlutun
framlaga vegna einstakra framkvæmda á því ári og annast greiðslur til
framkvæmdaaðila. Framlög vegna framkvæmda á næstliðnu ári skulu greidd eigi
síðar en 15. febrúar ár hvert.
Hámarksframlag
vegna einstakra framkvæmda má nema allt að 44% stofnkostnaðar við vatnsveitu
til heimilis- og búsþarfa, þ.e. kostnaðar við vatnsupptöku, þar með talin borun
eftir vatni og dælur, vatnsgeyma og leiðslu frá vatnsbóli að bæjarvegg. Enn
fremur telst til stofnkostnaðar þóknun fyrir úttekt, sbr. 5. gr.
Heildarfjárhæð
framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga samkvæmt reglugerð þessari á hverju ári
skal ekki fara yfir 25 millj. kr.
3. gr.
Umsóknir um framlög
til vatnsveituframkvæmda skulu vera skriflegar og hafa borist Bændasamtökum
Íslands fyrir 15. nóvember árið áður en ráðist er í viðkomandi framkvæmd.
Umsókn skal fylgja mat leiðbeiningarmiðstöðvar/héraðsráðunautar á þörf býlisins
fyrir viðkomandi framkvæmd og staðfest kostnaðar- og framkvæmdaáætlun. Sé um
byggingar að ræða skulu fylgja teikningar.
Umsókn skal fylgja
umsögn viðkomandi sveitarstjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. sé uppfyllt.
Ef ráðast þarf
tafarlaust í vatnsveituframkvæmd, s.s. vegna þess að vatnsból þornar í
náttúruhamförum eða af öðrum ástæðum, skal meta umsókn sem gilda ef hún berst
fyrir 15. nóvember á framkvæmdaári, enda fylgi staðfesting
leiðbeiningarstöðvar/héraðsráðunautar á að framkvæmd hafi verið nauðsynleg og
kostnaður er ekki umfram það sem eðlilegt getur talist.
4. gr.
Mati á umsóknum
skal lokið fyrir 1. febrúar á framkvæmdaári og tilkynna Bændasamtök Íslands
umsækjendum hvort umsóknir fullnægja skilyrðum reglugerðar þessarar um
styrkhæfni. Jafnhliða skulu Bændasamtökin senda ráðuneytinu áætlun um
heildarframlög vegna framkvæmda á árinu.
Í tilkynningu skv.
1. mgr. þessa ákvæðis er heimilt að setja nauðsynleg skilyrði um tæknilegan
frágang vatnsveitu.
5. gr.
Úttektir á
framkvæmdum, staðfestar af viðkomandi leiðbeiningarstöð/héraðsráðunauti, skulu
berast Bændasamtökum Íslands fyrir 15. nóvember á framkvæmdaári. Framkvæmdum
skal lokið áður en úttekt fer fram.
Vatnsveituframkvæmdum
telst lokið er pípur hafa verið grafnar í jörðu og einangraðar eins og fyrir er
mælt í verklýsingu og gengið hefur verið frá vatnsbóli þannig að yfirborðsvatn
komist ekki í það eða viðeigandi hreinsibúnaði hefur verið komið fyrir, sé þörf
á að nota yfirborðsvatn.
Úttektarmaður skal,
með samanburði við lýsingu og/eða teikningar sem fylgdu umsókn, fullvissa sig
um að verkið sé unnið í samræmi við það sem lýst var í umsókn og þau skilyrði
sem sett eru í tilkynningu Bændasamtaka Íslands, sbr. 2. mgr. 4. gr.
Ef óskað er eftir
framlagi vegna framkvæmda sem ekki hafa verið teknar út fyrir 15. nóvember skal
sótt um það að nýju vegna framkvæmda næsta árs. Hafi framkvæmdum verið frestað
milli ára verður að sækja um framlag á ný.
6. gr.
Ef Bændasamtök
Íslands telja að framkvæmdakostnaður eða einstakir kostnaðarliðir hafi farið
fram úr því sem eðlilegt getur talist er þeim heimilt að miða við lægri fjárhæð
í tillögum sínum til félagsmálaráðherra, sbr. 2. gr. Tilkynna skal
framkvæmdaaðila um allar slíkar breytingar og gefa honum hæfilegan frest til að
veita skýringar.
7. gr.
Reglugerð þessi er
sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 13. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr.
4/1995, samanber lög nr. 144/2000, og öðlast þegar gildi.
Ákvæði til
bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði
2. gr. skal stjórn Bændasamtaka Íslands skila tillögum um úthlutun framlaga
vegna framkvæmda á árunum 1999 og 2000 eigi síðar en 15. mars 2001. Umsóknir um
framlög vegna framkvæmda sem fram fóru á þeim árum skulu berast eigi síðar en
1. febrúar 2001 og skulu Bændasamtökin afla umsagna frá viðkomandi
sveitarstjórnum, sbr. 2. mgr. 3. gr., ef þær fylgja ekki umsóknum.
Heimilt er
Bændasamtökunum að miða við lægri kostnaðartölur í tillögum sínum samkvæmt 1.
mgr. en fram koma í umsóknum vegna þessara ára ef bersýnilegt er að framkvæmd
hefur reynst dýrari en eðlilegt getur talist. Framlög vegna framkvæmda skv. 1.
mgr. skulu greidd eigi síðar en 1. apríl 2001.
Félagsmálaráðuneytinu,
19. desember 2000.
Páll Pétursson.
Guðjón
Bragason.
Word útgáfa af reglugerð