Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

969/2011

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 911/2004
um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1760/2000
að því er varðar eyrnamerki, vegabréf og jarðabækur.

1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2009 frá 1. maí 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 911/2004 frá 29. apríl 2004 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1760/2000 að því er varðar eyrnamerki, vegabréf og jarðabækur.
  2. Reglugerð ráðsins nr. 1792/2006 frá 23. október 2006 um aðlögun tiltekinna reglugerða og ákvarðana á sviði frjálsra vöruflutninga, frjálsrar farar fólks, stefnu í samkeppnismálum, landbúnaðar (heilbrigðislöggjafar á sviði dýra og dýraafurða og löggjafar á sviði plöntuheilbrigðis), fiskveiða, stefnu í flutningamálum, skattlagningar, hagskýrslna, félagsmálastefnu og atvinnumála, umhverfismála, tollabandalags og samskipta við önnur ríki, vegna aðildar Búlgaríu og Rúmeníu, að því leyti sem gerðin breytir reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 911/2004.

2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 911/2004 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1792/2006 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 17. júní 2010, bls. 48.


3. gr.
Tilvísanir í gerðum sem tilgreindar eru í 1. gr. er varða ákvæði í hinni sameiginlegu landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins (CAP) gilda ekki við framkvæmd reglugerðar þessarar. Efnisákvæði reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1792/2006 eru einungis innleidd að því marki sem þau varða dýraheilbrigði í samræmi við 1. kafla, 1. viðauka EES-samningsins.


4. gr.
Eftirfarandi bætist við í I. viðauka í reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 911/2004.

„Ísland IS
NoregurNO“


5. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.


6. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.


7. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl. og öðlast gildi 1. nóvember 2011.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. október 2011.

Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.

B_nr_969_2011_an_fylgiskjals.docx

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt