Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

963/2013

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni („REACH“). - Brottfallin

1. gr.

Við 8. gr. bætast fjórir nýir stafliðir; q-, r-, s- og t-liður, sem orðast svo:

q)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 494/2011 frá 20. maí 2011 um breyt­ingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skrán­ingu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efna­reglurnar (REACH)), er snertir XVII. viðauka við hana (kadmíum), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 70/2013 frá 4. maí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 28 frá 16. maí 2013, 2013/EES/28/42, bls. 365-368.

r)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 835/2012 frá 18. september 2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skrán­ingu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efna­reglurnar (REACH)), er snertir XVII. viðauka við hana (kadmíum), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 71/2013 frá 4. maí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 16. maí 2013, 2013/EES/28/28, bls. 267-269.

s)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 836/2012 frá 18. september 2012 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi blýi) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 72/2013 frá 4. maí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 16. maí 2013, 2013/EES/28/29, bls. 254-256.

t)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 126/2013 frá 13. febrúar 2013 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)) sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 167/2013 frá 9. október 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56 frá 10. október 2013, 2013/EES/56/37, bls. 558-561.



2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 494/2011 frá 20. maí 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skrán­ingu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), er snertir XVII. viðauka við hana (kadmíum).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 835/2012 frá 18. september 2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skrán­ingu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), er snertir XVII. viðauka við hana (kadmíum).
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 836/2012 frá 18. september 2012 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi blýi) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 126/2013 frá 13. febrúar 2013 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr., sbr. 1. mgr. 26. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 15. október 2013.

F. h. r.

Stefán Thors.

Sigríður Auður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica