Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

962/2014

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 106/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 116/2014, frá 28. júní 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 702/2013 frá 22. júlí 2013 um umbreytingarráðstafanir vegna beitingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar faggildingu opinberra rannsóknarstofa sem annast opinberar prófanir vegna tríkínu og um breytingu á reglugerð fram­kvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1162/2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 25. september 2014, bls. 39.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og heldur gildi sínu til loka árs 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica