Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

939/2011

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1101/2004, um markaðssetningu sæfiefna.


1. gr.
Í stað 7. liðar í töflu í A. hluta V. viðauka, „Virk efni sem heimilt er að nota í sæfiefni“, komi nýr 7. liður, sbr. töflu í I. viðauka við þessa reglugerð.


2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, og lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2010/74/ESB frá 9. nóvember 2010 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að rýmka færsluna fyrir virka efnið koldíoxíð í I. viðauka við tilskipunina þannig að færslan nái yfir sæfiefnaflokk 18, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 73/2011.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.


Umhverfisráðuneytinu, 29. september 2011.

F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Sigríður Auður Arnardóttir.

I. VIÐAUKI
Nr.Almennt heitiIUPAC-heiti

Kenninúmer

Lágmarks­hreinleiki virks efnis í sæfiefni við markaðssetninguDagsetning skráningarMarkaðsleyfi sæfiefnis skal gefið út fyririSkráning gildir tilSæfiefna­flokkurSkilyrði fyrir markaðsleyfiii
7koldíoxíðkoldíoxíð

EB-nr.: 204-696-9

CAS-nr.: 124-38-9

990 ml/l1. nóvember 200931. október 201131. október 201914Meta þarf áhættu og tryggja að réttar ráðstafanir verði gerðar eða setja ákveðin skilyrði til að draga úr áhættu.

Umsókn þarf að sýna fram á að hægt sé að draga þannig úr áhættu að hún verði viðunandi.

990 ml/l1. nóvember 201231. október 201431. október 202218Meta skal áhættu og því næst tryggja að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar eða sérstök skilyrði sett til að draga úr þekktri áhættu svo við megi una.

Markaðsleyfi skal vera háð eftirfarandi skilyrðum:

1) Sæfiefni má eingöngu selja fagfólki sem fengið hefur þjálfun í að nota það og því einu er heimilt að nota sæfiefnið.

2) Gera skal viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að áhætta fyrir notendur sé í lágmarki, þ.m.t. að persónuhlífar séu aðgengilegar ef nauðsyn krefur.

3) Gera skal viðeigandi ráðstafanir til að verja nærstadda, s.s. með því að tæma meðhöndlaða svæðið meðan á svælingu stendur.

      i Þessi dagsetning á ekki við ef sæfiefnið inniheldur fleiri en eitt virkt efni, í því tilfelli gildir sú dagsetning sem tilgreind er fyrir það virka efni sem síðast er skráð í viðaukann og sem hefur lengstan frest.
      ii Nánari upplýsingar má fá í matsskýrslum (assessment reports) sem unnt er að nálgast á heimasíðu framkvæmdastjórnarinnar: http://ec.europa.eu/comm/environment/biocides/index.htm.

      B_nr_939_2011_an_vidauka.docx

Stofnreglugerð:
1101/2004 - Reglugerð um markaðssetningu sæfiefna.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt