Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

937/2010

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á frjóeggjum og mysudufti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III A og IV A við tollalög, nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr.

kg

%

kr./kg

0407.0001

Frjóegg (af tegund Gallus domesticus)

01.01. - 31.12.11

ótilgr.

0

0

Úr 0404.9000

Mysuduft

01.01. - 31.12.11

ótilgr.

0

5

Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils.

3. gr.

Við innflutning á frjóeggjum (0407.0001) skal gætt ákvæða laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, með síðari breytingum.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr., og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. nóvember 2010.

Jón Bjarnason.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica