|
|
922/2007
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um námsstyrki, nr. 692/2003,
með áorðnum breytingum.
1. gr. Við 2. mgr. 3. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo:
Þrátt fyrir þetta skal réttarstaða allra umsækjenda taka mið af skráningu í þjóðskrá þann dag sem auglýstur umsóknarfrestur rennur út.
2. gr. Talan „II“ í b. lið 6. gr. falli brott.
3. gr. Við 3. mgr. 6. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo:
Jafnframt er nefndinni heimilt að veita umsækjanda án fjöldskyldutengsla við skráð lögheimili undanþágu, sbr. a. lið 2. mgr., ef hann leggur fram opinbert vottorð um eignarhald sitt á lögheimilinu eða þinglýstan leigusamning til staðfestingar búsetu sinni.
4. gr. Nýtt fylgiskjal, sem birt er með reglugerð þessari, kemur í stað eldra fylgiskjals, sbr. reglugerð nr. 760/2004 og reglugerð nr. 829/2006 um breytingu á reglugerð um námsstyrki nr. 692/2003.
5. gr. Reglugerð þessi, sem sett er skv. 8. gr. laga um námsstyrki, nr. 79/2003, kemur í stað reglugerðar nr. 903/2007 og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 8. október 2007.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Þórhallur Vilhjálmsson.
Fylgiskjal.
Póstnúmer/svæði í nágrenni framhaldsskóla.
 | Póstnúmer | Nágrenni skóla |
| Skólar | skóla | póstnr./svæði |
 |  |  |
| Framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni * | 101-225; 270 | 101-225; 270 |
| Framhaldsskólar í Reykjanesbæ | 230; 235; 260 | 230; 235; 260 |
| Framhaldsskólar á Akranesi | 300 | 300; 301** |
| Framhaldsskólar í Borgarnesi | 310 | 310 |
| Framhaldsskólar í Grundarfirði | 350 | 350*** |
| Framhaldsskólar á Ísafirði | 400 | 400; 410 |
| Framhaldsdeild FSN á Patreksfirði | 450 | 450 |
| Framhaldsskólar á Sauðárkróki | 550 | 550 |
| Framhaldsskólar á Akureyri | 600; 603 | 600; 603 |
| Framhaldsskólar á Húsavík | 640 | 640 |
| Framhaldsskólar á Laugum | 650 | 650; 641**** |
| Framhaldsskólar á Egilsstöðum | 700 | 700; 701***** |
| Framhaldsskólar í Neskaupstað | 740 | 740 |
| Framhaldsskólar á Höfn í Hornafirði | 780 | 780 |
| Framhaldsskólar á Selfossi | 800 | 800 |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | 840 | 840 |
| Framhaldsskólar í Vestmannaeyjum | 900 | 900 |
* Reykjavíkurborg; Seltjarnarneskaupstaður; Kópavogsbær; Garðabær; Mosfellsbær; Hafnarfjarðarkaupstaður; Sveitarfélagið Álftanes.
** Svæðið sunnan Akrafjalls, frá Miðgarði að Akranesi.
*** Grundarfjarðarbær: Milli Lárvaðals og Grjótár.
**** Þingeyjarsveit: Umhverfis Laugar að þjóðvegi 1.
***** Fellabær.

Stofnreglugerð: 692/2003 - Reglugerð um námsstyrki.
|