|
|
922/2004
felld brott með rg. nr. 672/2008
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 121/2004
um varnarefnaleifar í matvælum.
1. gr. Tafla 1 í viðauka 2 breytist með eftirfarandi hætti:
Hámarksgildi fyrir varnarefnið 2,4-D (samanlögð gildi af 2,4-D og esterum þess) í sítrusávöxtum er 1 (t) mg/kg.
2. gr. Tafla 1 í viðauka 2 breytist með eftirfarandi hætti:
Hámarksgildi fyrir varnarefnin aldrin Gildi fyrir aldrin í nípu og matvælum af graskeraætt með ætu og óætu hýði stafa af mengun frá fortíðinni. , Niðurstöður úr vöktun sýna að allt að 0,02 mg/kg af dieldrin geta verið í graskersfræjum sem notuð eru við olíuútdrátt. , asefat, brómóprópýlat, cyazofamíð, 2,4-DB, 1,2-díklóróetan, etoxysúlfuron, etýlenoxíð, fenamífos (samanlögð gildi af fenamífos og súlfíðum og súlfónum þess), foramsúlfuron, hexaklórbenzen, HCH (summa af alfa og beta HCH), klórdan, kvikasilfur (samanlögð gildi fyrir kvikasilfursambönd), imazomox, linuron, nítrófen, oxadíargyl, oxasúlfuron, paraþíon-metýl og pendimetalin eins og fram kemur í viðauka 1 við þessa reglugerð.
3. gr. Tafla 2 í viðauka 4 breytist með eftirfarandi hætti:
Hámarksgildi fyrir varnarefnin bínapakrýl, kaptafól, nítrófen, 1,2-díklóróetan, etýlenoxíð (samanlögð gildi fyrir etýlenoxíð og 2-klóróetanól), kamfeklór (samanlögð gildi þriggja Parlarindíkatóra nr. 26, 50 og 62), kvikasilfurssambönd og pendimetalín eru eins og fram kemur í viðauka 2 við þessa reglugerð.
4. gr. Tafla 3 í viðauka 4 breytist með eftirfarandi hætti:
Hámarksgildi fyrir varnarefnin asefat, 2,4-DB, dínoseb, fenamífos (samanlögð gildi af fenamífos og súlfíðum og súlfónum þess), oxasúlfuron og paraþýon-metýl (samanlögð gildi fyrir paraþýon-metýl og paraoxon-metýl) eins og fram kemur í viðauka 3 við þessa reglugerð.
5. gr. Tafla 5 í viðauka 5 breytist með eftirfarandi hætti:
Hámarksgildi fyrir varnarefnin asefat, bínapakrýl, cyazofamid, 2,4-DB, 1,2-díbrómóetan, dínóseb, 1,2-díklóróetan, ethoxysulfuron, etýlenoxíð (samanlögð gildi af elýlenoxíði og 2-klóró-etanól), fenamifos (samanlögð gildi af fenamífos og súlfíðum og súlfónum þess), foramsúlfuron, imazomox, kamfeklór, kvikasilfursambönd, linuron, oxadíargyl, oxasúlfuron, nítrófen, pendimetalin og paraþýon-metýl eins og fram kemur í viðauka 4 við þessa reglugerð.
6. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli samanber og lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum og til innleiðingar á tilskipunum 2003/113/EB um breytingu á viðaukum við tilskipanir ráðsins nr. 86/362/EBE, 86/363/EBE og 90/642/EBE um hámarksgildi varnarefnaleifa í kornvörum, dýraafurðum ásamt ávöxtum og grænmeti, 2003/118/EB um breytingu á viðaukum við tilskipanir ráðsins nr. 76/895/EBE, 86/362/EBE og 90/642/EBE um hámarksgildi varnarefnaleifa fyrir asefat, 2,4-D og paraþíon-metýl, 2004/2/EB um breytingu á tilskipunum ráðsins 86/362/EBE, 86/363/EBE og 90/642/EBE um hámarksgildi leifa af varnarefninu fenamífos í matvælum, sem vísað er til í 13., 38., 39. og 54. tl. XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124 frá 24. september 2004 svo og tilskipunum 2004/59/EB um breytingu á tilskipun 90/642/EBE er varðar hámarksgildi fyrir leifar af varnarefninu brómópropýlat og 2004/61/EB um breytingu á viðaukum við tilskipanir 86/362/EBE, 86/363/EBE og 90/642/EBE er varðar hámarksgildi fyrir leifar af tilteknum varnarefnum sem óleyfilegt er að nota innan Evrópu-sambandsins.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 17. nóvember 2004.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson. Sigríður Auður Arnardóttir.
VIÐAUKI 2
(pdf)
VIÐAUKI 3
(pdf)
VIÐAUKI 4
(pdf)
Stofnreglugerð: 121/2004 - Reglugerð um varnarefnaleifar í matvælum.
|