| 14.1 | Í lyfjakistu hvers skips, að björgunarförum undanskildum, skal vera eintak af handbók lyfjakistu skipa, en í henni er: |
 | - | Eintak af þessari reglugerð ásamt viðauka I, lista yfir sjúkragögn í lyfjakistu og viðauka II, lista yfir sjúkragögn í sjúkrakassa. |
 | - | Lyfjaskrá sem gefin er út af Siglingastofnun Íslands í tengslum við þessa reglugerð. |
 | - | Dagbók lyfjakistu skips. |
 | - | Tölusett eyðublöð í tvíriti fyrir pantanir |
| 14.2 | Einnig skal vera í lyfjakistunni eftirfarandi: |
 | - | Eyðublöð til notkunar við sjúkdómsgreiningu áður en leitað er aðstoðar læknis í gegnum fjarskipti. |
 | - | Eintak af lækningabók sjófarenda sem gefin er út af Siglingastofnun Íslands eða eintak af lækningabók sjófarenda sem samþykkt er af Siglingstofnun Íslands í lyfjakistum skipa sem eru flokkuð í A (skip sem fara út fyrir 150 sjómílur frá næstu höfn) og B (skip með mestu lengd 15 metrar eða lengri, sem fara styttri sjóferðir en 150 sjómílur frá næstu höfn) í 3. gr. reglugerðarinnar. |
 | - | Eintak af lækningabók sjófarenda sem samþykkt er af Siglingstofnun Íslands í lyfjakistum skipa sem eru flokkuð í C (skip með mestu lengd allt að 15 metrum). |
| 14.3 | Í lyfjakistu D fyrir björgunarför skal vera stuttur leiðarvísir um skyndihjálp. |
| 14.4 | Skip sem flytja hættulegan varning samkvæmt skilgreiningu Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) skulu hafa um borð nýjustu útgáfu af: |
 | - | International Maritime Dangerous Goods Code (IMDG Code). |
 | - | Emergency Procedures for Ships Carrying Dangerous Goods (EMS) |
 | - | Medical First Aid Guide for Use in Accidents Involving Dangerous Goods (MFAG). |