Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

920/2014

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. bætast tveir nýir stafliðir, f og g:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 655/2013 frá 10. júlí 2013 um sameiginlegar viðmiðanir um rökstuðning fyrir fullyrðingum sem eru notaðar í tengslum við snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1b. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2014, þann 27. júní 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 465-468.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 658/2013 frá 10. júlí 2013 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í 1a. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2014, þann 27. júní 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 449-464.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 655/2013 frá 10. júlí 2013 um sameiginlegar viðmiðanir um rökstuðning fyrir fullyrðingum sem eru notaðar í tengslum við snyrtivörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 658/2013 frá 10. júlí 2013 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 7. október 2014.

F. h. r.

Hugi Ólafsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.