REGLUGERÐ
um viðmiðun
ÍSN93, grunnstöðvanet og mælistöðvar
til notkunar við
landmælingar og kortagerð.
I. Kafli
Markmið o.fl.
1.
gr.
Markmið með reglugerð þessari er að staðfesta staðla
landshnitakerfis fyrir landmælingar og kortagerð á Íslandi og tryggja þannig
sameiginlega viðmiðun og hnitakerfi fyrir landið allt. Bæjar- og
sveitarfélögum, stofnunum, fyrirtækjum og almenningi er þannig gert kleift að
nota sama grunn við mælingar og kortagerð.
Jafnframt er markmiðið að auðvelda samskipti og samvinnu um
kort og landfræðileg gögn er tengjast m.a. verklegum framkvæmdum, skipulagi og
landupplýsingakerfum.
2.
gr.
Landmælingar Íslands annast gerð staðla um landmælingar og
kortagerð og leiðbeiningar um notkun þeirra. Stofnunin leggur út hnitakerfi
fyrir landið allt og sér um að tryggja viðhald og nákvæmni mælistöðva í
grunnstöðvanetinu.
Stofnunin skal hafa tiltækar grunnupplýsingar um hnitakerfi
og mælingar sem til eru af hinum ýmsu stöðum á landinu. Stofnunin skal hafa
upplýsingar um hver hafi framkvæmt mælingu, áreiðanleika þeirra og aðgengi.
II. Kafli
Viðmiðun ÍSN93.
3.
gr.
Viðmiðun ÍSN93 ákvarðast af eftirfarandi:
1. Jarðmiðjukerfinu ITRF93.6 (International Terrestrial
Reference Frame
1993.6). Z-ás kerfisins fellur saman við snúningsás
jarðar, en X- og
Y-ásarnir spanna miðbaugsflötinn. X-ásinn liggur í fleti
Greenwich hádegisbaugsins, en Y
ásinn hornrétt á X-ásinn til austurs.
2. Sporvölunni GRS-80 (Geodetic Reference System
1980).
Kennistærðir sporvölunnar eru eftirfarandi:
|
a)
|
hálfur langás
|
a = 6 378 137 m
|
|
b)
|
þyngdarstuðull jarðar miðað við jarðarmiðju
|
GM = 3986005·108 ·m3 ·s-2
|
|
c)
|
aflfræðilegur formstuðull jarðar
|
J2 = 108263·10-8
|
|
d)
|
meðal hornhraði jarðar
|
l = 7292115·10-11·rad·s-1
|
|
|
þar af leiðandi er pólfletja sporvölunnar
|
f = 1/298,257222101
|
3. Niðurstöðum GPS-mælinga árið 1993 á grunnstöðvaneti 119
mælistöðva (ÍSNET93), sbr. 5. gr.
4.
gr.
Landshnitakerfið, sbr. 9. gr., hefur viðmiðunina ÍSN93,
sbr. 3. gr., og leysir hún af hólmi eldri viðmiðanir landshnitakerfa: Reykjavík
1900 og Hjörsey 1955.
III. Kafli
Grunnstöðvanet.
5. gr.
Grunnstöðvanetið samanstendur af 119 mælistöðvum, sem
mældar voru árið 1993 í landmælingaverkefninu ÍSNET93, sbr. fylgiskjal 1 og 2.
6.
gr.
Landmælingar Íslands skulu sjá um viðhald og eftirlit með
grunnstöðvanetinu. Skal stofnunin sjá um endurmælingu stöðva eftir því sem
ástæða er til. Verði höggun á landi eða landshlutum skal sá hluti netsins, sem
höggunin tekur til, mældur að nýju með viðeigandi mæliaðferðum og tækjabúnaði
eins fljótt og aðstæður leyfa.
7.
gr.
Endurmæla skal grunnstöðvanetið í heild sinni eigi sjaldnar
en á 10 ára fresti.
8.
gr.
Þurfi að færa til og endurmerkja mælistöð í
grunnstöðvanetinu eða fjarlægja hana skal það gert undir stjórn Landmælinga
Íslands.
9.
gr.
Við landmælingar og kortagerð skal nota hnitakerfi á
hornsannri keiluvörpun Lamberts, þar sem mælikvarðinn er einn á
breiddarbaugunum 64° 15' og 65° 45' norður breiddar. X-ásinn liggur til norðurs
eftir lengdarbaug 19° vestur lengdar, en Y-ásinn hornrétt á X-ásinn til austurs
við 65° norður breiddar. Skurðpunktur ásanna hefur hnitin X=500.000,000 metrar
og Y=500.000,000 metrar. Stefna er mæld og reiknuð réttsælis frá norðri til
austurs.
IV. Kafli
Mælistöðvar
tengdar grunnstöðvaneti
10.
gr.
Mælistöðvar tengdar grunnstöðvanetinu skulu vera
varanlegar, stöpull eða skrúfbolti. Skulu þær merktar greinilega með númeri,
ártali og einkennisstöfum stofnunar eða fyrirtækis sem framkvæmir verkið sbr.
14. gr.
11.
gr.
Innmæling á nýjum og gömlum punktum út frá
grunnstöðvanetinu skal eigi hafa meira staðalfrávik en tveir sentimetrar til
eða frá (+/- 2 cm) í legu og þrír sentimetrar til eða frá (+/- 3 cm) í hæð.
12.
gr.
Endurmerkja skal mælistöð þegar eldri merking hefur verið
færð til, raskast eða glatast. Endurmerkingu má aðeins framkvæma með samþykki
þeirrar stofnunar eða fyrirtækis, sem upphaflega merkti mælistöðina.
Landmælingum Íslands skal tilkynnt um endurmerkinguna og
afhent öll gögn þar að lútandi til skráningar (mælingar, úrvinnsla og
stöðvarlýsing).
13.
gr.
Ef mælistöð er endurmerkt skal hún fá nýtt númer sbr. 14.
gr. í samræmdu númerakerfi Landmælinga Íslands.
14.
gr.
Númer mælistöðva má vera allt að átta stöfum. Skulu tveir
einkennisstafir þess aðila sem setur upp stöðina vera fremst og síðan allt að
sex stafa tala. Seinni hluti númersins má þó þegar sérstaklega stendur á vera
allt að átta stafa. Hafa skal samráð við Landmælingar Íslands um notkun
einkennisstafa.
15.
gr.
Gera skal lýsingu á mælistöð þegar hún er sett upp. Skal
hún vera glögg og greinargóð þannig að hægt sé á auðveldan hátt að finna
stöðina og meta notkunarmöguleika hennar. Stöðvarlýsingu skal halda við og
breyta jafnóðum og ástæða er til, s.s. vegna breytinga á leið að mælistöð eða
næsta nágrenni hennar.
V. KAFLI
Ýmis ákvæði
16.
gr.
Landmælingar Íslands skulu veita nánari upplýsingar og
leiðbeiningar um eldri landskerfi, grunnstöðvanetið, viðmiðun ÍSN93,
stöðvarlýsingar, svo og um önnur atriði sem reglugerð þessi fjallar um.
17.
gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 12. gr.
laga um landmælingar og kortagerð nr. 95/1997 sbr. lög nr. 132/1998, öðlast
þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu,
22. desember 1999.
Siv
Friðleifsdóttir.
Magnús Jóhannesson.
Word útgáfa af reglugerð