Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

912/2012

Reglugerð um samræmda eftirlitsáætlun fyrir árin 2012, 2013 og 2014 vegna hámarksgildaleifa af varnarefnum og mats á þeim váhrifum sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun I við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2012, frá 27. júlí 2012, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1274/2011 um sam­ræmda eftirlitsáætlun sambandsins til margra ára fyrir árin 2012, 2013 og 2014 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi leifa af varnarefnum og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á mat­vælum úr jurta- og dýraríkinu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 59, frá 18. október 2012, bls. 276.

2. gr.

Við 1. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1274/2011 bæt­ist eftirfarandi málsgrein:

Íslandi er heimilt á árunum 2012, 2013 og 2014 að taka sýni og greina 61 varnar­efni í samræmi við eftirlitsáætlun sem í gildi var fyrir árið 2011.

3. gr.

Við 5. tölulið II. viðauka framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1274/2011 bætist:

  IS

  12 (*)
  15 (**)

  NO

  12 (*)
  15 (**)



4. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

7. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2012.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica