|
|
908/2009
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 770, 8. september 2006,
um veiðar á íslenskri sumargotssíld, með síðari breytingum.
1. gr. 2. mgr. 6. gr., sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 1071/2008, orðist svo:
Heimilt er að miðla afla úr nótum á miðunum milli skipa sem hafa leyfi til síldveiða í því skyni að koma í veg fyrir að síld sé sleppt dauðri úr nótum.
2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. nóvember 2009.
F. h. r.
Hrefna Gísladóttir. Kristján Freyr Helgason.

Stofnreglugerð: 770/2006 - Reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld.
|