Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1039/2011
felld brott með rg. nr. 1012/2012

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 408/2011 um tímabundna
tannlæknaþjónustu án endurgjalds fyrir börn tekjulágra foreldra.


1. gr.
Við 1. gr. bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Á sama hátt er Sjúkratryggingum Íslands heimilt á tímabilinu 1. nóvember 2011 til 15. janúar 2012 að greiða nauðsynlegar tannlækningar skv. 1. mgr. í samræmi við samninga sem stofnunin gerir.


2. gr.
Í 1. mgr. 4. gr. falla út orðin „veitt í Reykjavík og“.


3. gr.
Við 5. gr. bætist við ný málsgrein sem orðast svo:

Frá 1. nóvember 2011 annast Sjúkratryggingar Íslands samningsgerð við einstaka tannlækna um tannlækningar samkvæmt reglugerðinni.


4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr., 2. mgr. 30. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, og 2. mgr. 11. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Velferðarráðuneytinu, 3. nóvember 2011.

Guðbjartur Hannesson.
Anna Lilja Gunnardóttir.

B_nr_1039_2011.docx

Stofnreglugerð:
408/2011 - Reglugerð um tímabundna tannlæknaþjónustu án endurgjalds fyrir börn tekjulágra foreldra.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt