Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

894/2012

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.

1. gr.

Á eftir e-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður (f.) svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 413/2010 frá 12. maí 2010 um breytingu á III., IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs til að taka tillit til breytinga sem samþykktar voru með ákvörðun ráðs Efnahags- og framfarastofnunarinnar C(2008) 156, sem vísað er til í tölulið 32c, V. kafla, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2012 frá 30. apríl 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 27. september 2012 - 2012/EES/54/46 bls. 498-499.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 413/2010 frá 12. maí 2010 um breytingu á III., IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs til að taka tillit til breytinga sem samþykktar voru með ákvörðun ráðs Efnahags- og framfarastofnunarinnar C(2008) 156.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 29. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 19. október 2012.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.