REGLUGERÐ
fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár.
1. Leyfishafi.
1.1 Íslensk getspá er félag í
eigu Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og
Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), sem stofnað er til að starfrækja talnagetraunir
og/eða bókstafagetraunir í þeim tilgangi að afla fjár til eflingar íþróttum á
vegum áhugamanna um íþróttir í landinu í félögum innan ÍSÍ og UMFÍ og til að
greiða stofnkostnað við íbúðarhúsnæði fyrir öryrkja á vegum ÖBÍ eða til að
standa undir annarri starfsemi þess í þágu öryrkja.
Heimili félagsins, aðalskrifstofa
og varnarþing er í Reykjavík.
2. Tegundir talnagetrauna.
2.1 Félagið starfrækir
talnagetraunir (lottó) undir heitunum Lottó 5/38, Jóker og Víkingalottó (Lottó 6/48),
en hina síðastnefndu talnagetraun starfrækir það í samvinnu við eftirgreind
talnagetraunafyrirtæki: AB Svenska Spel, Svíþjóð, Norsk Tipping A/S, Noregi, OY
Veikkaus ab, Finnlandi, og Dansk Tipstjeneste AS, Danmörku. Um
getraunastarfsemina gilda eftirfarandi reglur:
3. Leikspjöld, útfylling
þeirra og greiðsla.
3.1 Íslensk getspá gefur út og
dreifir leikspjöldum til þátttöku í talnagetraununum. Leikspjöld má
einnig nálgast með rafrænum hætti í gegnum tölvu, síma eða gagnvirkt sjónvarp.
Á hverju leikspjaldi Lottó 5/38 eru 10 leikir (raðir), sem merktir eru
bókstöfunum A, B, C, D, E, F, G, H, I og J, og er hver leikur með tölunum 1-38.
Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til tíu leikjum á hverju leikspjaldi.
Á leikspjöldum fyrir Lottó 5/38 er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í
ef þeir vilja taka þátt í Jóker en þátttaka í Jóker er bundin þátttöku í Lottó
5/38. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0-9 til að mynda Jókertölur
sínar.
Á hverju leikspjaldi
Víkingalottós eru 10 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D, E,
F, G, H, I og J, og er hver leikur með tölunum 1-48. Getur hver þátttakandi
tekið þátt í einum til 10 leikjum á hverju leikspjaldi.
Á sölustöðum skulu vera
leiðbeiningar um þátttöku í viðkomandi talnagetraun. Þar skal og vera hvatning
til þátttakenda að rita nafn sitt á þátttökukvittun í öryggisskyni.
3.2 Leikir í talnagetraununum
fara að jafnaði fram einu sinni í viku samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar
Íslenskrar getspár.
3.3 Leikirnir felast í því að
þátttakandi strikar lóðrétt með blýanti eða dökkum penna (ekki rauðum lit) í
reiti fimm mismunandi talna í Lottó 5/38 en í reiti sex mismunandi talna í
Víkingalottói, sem hann velur af þeim tölum sem tilgreindar eru í hverri röð.
Ef þátttaka fer fram með rafrænum hætti, í gegnum tölvu, síma eða gagnvirkt
sjónvarp, velur þátttakandi tölur á tilheyrandi skjá. Geri þátttakandi villu
skal hann ógilda þá röð með því að strika lóðrétt yfir, eða velja með því að
ýta (smella) á ef um rafrænt leikspjald er að ræða, þar til gerðan
ógildingarreit viðkomandi raðar, og gildir þá ekki sú röð. Þátttakandi í Jóker
ritar, eða velur með því að ýta (smella) á ef um rafrænt leikspjald er
að ræða, þær fimm tölur sem hann velur úr tölunum 0-9 í þar til gerða reiti á
leikspjaldinu.
3.4 Að loknu vali á tölum
samkvæmt lið 3.3 er leikspjaldið afhent söluaðila sem rennir því í sölukassa
sem tengdur er tölvukerfi Íslenskrar getspár og skráir sjálfvirkt valdar
Lottótölur. Jókertölur sem valdar eru á leikspjaldinu skráir söluaðili þó inn í
tölvukerfið. Þátttakandi getur einnig tilkynnt þátttöku sína með því að skýra
söluaðila munnlega frá vali sínu á tölum og þá sér söluaðili um skráningu
þeirra talna í tölvukerfi Íslenskrar getspár. Þá getur þátttakandi óskað eftir
að tölur hans verði valdar af handahófi í sölukassa. Þegar um rafræna þátttöku
er að ræða staðfestir þátttakandi val sitt með því að ýta (smella) á
_staðfesta" eða sambærilegan lykil og fara upplýsingarnar þá með rafrænum
hætti til Íslenskrar getspár.
3.5 Söluaðili skal síðan afhenda
þátttakanda þátttökukvittun ásamt viðkomandi leikspjaldi gegn greiðslu. Á
kvittun skal koma fram bókstafur þeirrar eða þeirra raða sem þátttaka er bundin
við og þær tölur, er þátttakandi hefur valið í hverri röð, svo og Jókertölur ef
þær eru valdar. Þá skal koma fram heildartala þeirrar fjárhæðar, sem greidd
hefur verið, dagsetning útdráttar eða gildistími, ef tekið er þátt í fleiri en
einni leikviku, og öryggisnúmer, sem auðkennir viðkomandi afgreiðslu.
Þátttakandi skal ganga úr skugga
um að samræmi sé milli kvittunar og merkja á leikspjaldi, eða að hún sé í
samræmi við munnleg fyrirmæli hans, hafi hann gefið tölur sínar upp munnlega.
Þá ber þátttakanda að ganga úr skugga um að þátttökukvittun greini
útdráttardag(a) eða gildistíma sem þátttaka er bundin við.
Þegar greiðsla er innt af hendi
með rafrænum hætti leitar móðurtölva Íslenskrar getspár heimildar hjá
viðkomandi kortafyrirtæki eða banka og fær staðfestingu á að viðkomandi
greiðslukort/bankareikningur sé í gildi og heimild sé fyrir úttekt. Þegar
greiðsla hefur verið staðfest getur þátttakandi prentað út eigin kvittun eða
óskað eftir því að fá hana senda í pósti eða tölvupósti. Upplýsingar um
greiðslu eru færðar á kvittunina.
Stjórn Íslenskrar getspár er
heimilt að ákveða að þátttakanda, sem keypt hefur þátttökukvittun sem á eru 10
raðir eða fleiri, sé látin í té án greiðslu, sem kaupauki, þátttökukvittun sem
á er 1-ein-röð.
3.6 Þátttakandi getur gert
skriflegan samning um kaup á leikjum Íslenskrar getspár með því að gerast
áskrifandi og greiða með greiðslukorti. Gildir sá samningur þar til honum er
sagt upp eða ef samningur viðkomandi við greiðslukortafyrirtækið fellur úr
gildi. Áskriftarsamningi fylgir kaupauki, þannig að þátttakandi greiðir
einungis fyrir fjóra útdrætti mánaðarlega, þó svo að útdrættir séu fimm í
einstökum mánuðum.
3.7 Leikspjald fyrir Lottó 5/38,
Jóker og Víkingalottó gildir aldrei sem kvittun, en þátttakandi getur notað það
aftur eða látið það gilda í 2, 5 eða 10 leikvikur, að eigin vali, ef hann óskar
eftir óbreyttu talnavali, með því að strika lóðrétt yfir viðkomandi reit á
leikspjaldi um fjölda vikna.
3.8 Þátttaka í talnagetraunum fer
fram í samræmi við það er þátttökukvittun greinir. Telji þátttakandi að
þátttökukvittun sé ekki í samræmi við leikspjald eða þær munnlegu upplýsingar,
er hann gaf, skal hann bera fram kvörtun sína þegar í stað. Að öðrum kosti
verður litið svo á að hann hafi með móttöku þátttökukvittunar samþykkt þátttöku
í samræmi við þær tölur, er kvittunin greinir. Þátttakandi ber einn ábyrgð á
þátttökukvittun sinni og á enga kröfu til vinnings nema gegn framvísun hennar.
Íslensk getspá ber ekki ábyrgð á villu í prentun kvittunar og ábyrgð félagsins
á rangri kvittun er takmörkuð við ógildingarverðmæti hennar samkvæmt lið 3.9.
Félagið ber ekki ábyrgð á stolnum eða glötuðum kvittunum.
3.9 Þátttökukvittun má ógilda með því að skila henni aftur til
söluaðila, enda sé það gert samdægurs og sala fór fram og það tímanlega að unnt
sé að ljúka ógildingu á innfærslu hennar í tölvukerfi Íslenskrar getspár, áður
en útdráttur fer fram. Sé þátttökukvittun ógilt, á greiðandi rétt á
endurgreiðslu á sömu fjárhæð og hann greiddi. Þeir sem taka þátt með rafrænum
hætti geta einnig óskað eftir því að fá endurgreiðslu og leggst þá fjárhæðin á
sama reikning og notaður var til þess að greiða fyrir þátttöku í leiknum.
3.10 Verð fyrir hvern leik (röð)
í Lottó 5/38 er kr. 50,- Jóker kr. 80,- og í Víkingalottói kr. 25,-. Aðeins er
unnt að gerast þátttakandi hjá söluaðilum Íslenskrar getspár.
3.11 Öll vinnsla í tölvukerfi
Íslenskrar getspár hvað varðar Lottó 5/38 og Jóker skal falla niður frá því 15
mínútum áður en útdráttur á að fara fram þar til útdrætti er að fullu lokið. Að
því er varðar Víkingalottó skal vinnsla í tölvukerfinu falla niður 1
klukkustund áður en útdráttur á að fara fram.
4. Kerfisleikspjöld.
4.1 Heimilt er að gera sérstök
leikspjöld fyrir þá, sem óska þess að nota kerfi við talnagetraunir. Í Lottó
5/38 skulu leikspjöld þessi vera fyrir 6, 7, 8, 9 eða 10 talnamöguleika og
samsvara tölur þessar, 6, 21, 56, 126 eða 252 mismunandi fimm stafa töluröðum
(leikjum) þeirra talna sem valdar eru. Kerfisleikspjald skal þátttakandi fylla
út á þann veg að hann strikar lóðrétt í reiti þeirra talna, er hann velur úr
tölunum 1-38 og staðfestir fjölda þeirra (6, 7, 8, 9 eða 10) með því að merkja
aftan við viðkomandi tölur á leikspjaldinu.
4.2 Í Víkingalottói skulu
leikspjöld þessi vera fyrir 7, 8, 9 eða 10 talnamöguleika og samsvara tölur
þessar 7, 28, 84 eða 210 mismunandi 6 stafa talnaröðum þeirra talna sem valdar
eru. Kerfisleikspjald skal þátttakandi fylla út á þann veg að hann strikar
lóðrétt í reiti þeirra talna, er hann velur úr tölunum 1-48 og staðfestir
fjölda þeirra (7, 8, 9 eða 10) með því að merkja aftan við viðkomandi tölur á
spjaldinu.
4.3 Í framangreindum kerfum
ákvarðast verð af fjölda raða og verði fyrir hvern leik (röð) sbr. lið 3.10.
5. Útdráttur vinninga.
5.1.1 Útdráttur vinninga í Lottó
5/38 fer fram opinberlega á laugardegi, samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar
Íslenskrar getspár að viðstöddum fulltrúa hennar og skipuðum eftirlitsmanni
samkvæmt lið 10.1. Útdráttur vinninga fer þannig fram að í þar til gerðum
stokki eru valdar fimm vinningstölur, aðaltölur, af tölunum 1- 38. Því næst er
valin bónustala af þeim tölum sem þá eru eftir. Verði bilun í þar til gerðum
stokki, sem velur vinningstölur og síðan bónustölu, skal dregið úr þar til
gerðum spjaldastokki með 38 spjöldum með tölunum 1-38, fyrst fimm vinningstölur
og síðan bónustölu, af þeim tölum sem þá eru eftir. Áður en slíkur útdráttur
fer fram skal gengið úr skugga um að í spjaldastokknum séu spjöldin merkt
tölunum frá 1-38.
Niðurstöður útdráttar og aðrar
upplýsingar um framkvæmd hans skal færa í sérstaka gerðabók og undirrita af
fulltrúa stjórnarinnar og eftirlitsmanninum.
5.1.2 Samtímis útdrætti sbr.
5.1.1. fer fram útdráttur í Jóker. Útdráttur fer þannig fram að fimm hjól,
hvert með tölunum 0-9, eru sett í gang og við stöðvun hjólanna koma fram hinar
fimm útdregnu tölur. Tölurnar, í þeirri röð sem þær birtast, mynda Jókertölur
vikunnar. Verði bilun í einu eða fleirum af hinum fimm hjólum með tölunum 0-9,
skal dregið úr einum eða allt að fimm, eftir því sem við á, þar til gerðum
spjaldastokkum þar sem spjöldin eru merkt tölunum 0-9. Áður en slíkur útdráttur
fer fram skal gengið úr skugga um að í spjaldastokkunum séu spjöldin merkt
tölunum 0-9.
5.2 Útdráttur í Víkingalottói fer
fram á hverjum miðvikudegi í heimalandi einhvers samstarfsaðila, undir
eftirliti þarlendra yfirvalda, samkvæmt reglum sem samþykktar eru af opinberum
eftirlitsaðilum samstarfsaðilanna, hér á landi af dómsmálaráðuneytinu. Þegar
dráttur fer fram hér á landi fer um eftirlitið í samræmi við lið 5.1.1.
Útdrátturinn fer fram með þeim
hætti að valdar eru sex aðaltölur af tölunum 1-48 og því næst eru valdar 2
bónustölur af þeim tölum sem þá eru eftir.
5.3 Beri útdráttardag upp á
hátíðisdag er heimilt að framkvæma útdrátt næsta virkan dag á undan, eða á
öðrum degi sem dómsmálaráðuneytið samþykkir. Vinningstölur fyrir Lottó 5/38,
Jóker og Víkingalottó skulu birtar í fjölmiðlum.
5.4 Þeir sem hafa þátttökukvittun
með tölum þeim, sem valdar hafa verið, annað hvort allar eða hluta þeirra í
sama leik (röð), án tillits til röðunar þeirra sbr. þó 5.5.2., fá vinning í
samræmi við ákvæði liða 5.5 - 5.8.
5.5 Til vinninga skal verja 40%
af heildarsöluverði þátttökukvittana hverrar leikviku, þar með talið andvirði
þátttökukvittana sem látnar eru þátttakendum í té sem kaupauki án endurgjalds.
Vinningsfjárhæðin skiptist þannig:
5.5.1 Lottó 5/38:
a) 46% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa allar 5 aðaltölur réttar. Með vísan til 5. gr., lokamálsliðar
5.6, skal, ef 46% af heildarvinningsfjárhæð nær ekki 2 milljónum króna, bæta
við fyrsta vinningsflokk fjárhæð, sem þarf til að vinningsfjárhæðin fari yfir 2
milljónir króna. Viðbót þessi skal hlaupa á 50.000 krónum.
b) 5% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu. Með vísan til
liðar 5.6., 3. mgr., er heimilt, ef 5% af heildarvinningsfjárhæð nær ekki
300.000 krónum, að bæta við þennan vinningsflokk fjárhæð sem þarf til að
vinningsfjárhæðin fari yfir 300.000 krónur. Viðbót þessi skal hlaupa á 10.000
krónum.
c) 11% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar.
d) 26% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar.
e) 12% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa 2 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu.
5.5.2 Jóker:
Vinningar ráðast af því hve
margar útdregnar tölur þátttakandi fær miðað við rétta röð útdreginna talna
þannig að,
fyrir 5 tölur réttar greiðast kr.
1.000.000,-
fyrir 4 síðustu tölur réttar
greiðast kr. 100.000,-
fyrir 3 síðustu tölur réttar
greiðast kr. 10.000,-
fyrir 2 síðustu tölur réttar
greiðast kr. 1.000,-
5.5.3 Víkingalottó:
a) Fyrsti vinningur er
sameiginlegur hjá þátttökuaðilum sbr. 2. grein. Greiðir hvert
talnagetraunafyrirtæki 0,035 ECU (European Currency Unit) af andvirði hvers
selds leiks til þessa vinnings. Verðmæti hans í íslenskum krónum ákvarðast af
kaupgengi ECU á útdráttardegi og skiptist jafnt á milli þeirra sem hafa allar 6
tölurnar réttar.
b) Til annarra vinninga renna 40%
af heildarsölu hverrar leikviku hér á landi að frádreginni greiðslu Íslenskrar
getspár til fyrsta vinnings sbr. a) lið og skiptast í vinningsflokka í
eftirgreindum hlutföllum:
1. 28% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa 5 aðaltölur réttar og auk þess rétta eina af tveim bónustölum.
2. 22% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa 5 aðaltölur réttar.
3. 35% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar.
4. 15% skiptast jafnt á milli
þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar og auk þess rétta eina af tveim bónustölum.
5.6 Þátttakendur hljóta eingöngu
vinning í samræmi við hæsta fjölda talna í hverri röð, þ.e. sá sem hlýtur
vinning samkvæmt a) lið hlýtur ekki vinning samkvæmt öðrum liðum, o.s.frv.
Vinningar í Lottó 5/38 og
Víkingalottó skulu færðir niður í næsta heilan tug króna. Mismunur sem myndast
með því skal yfirfærður til 1. vinnings einu sinni til tvisvar á ári, eftir
nánari ákvörðun stjórnar.
Stjórn Íslenskrar getspár er
heimilt að leggja viðbótarfé frá fyrirtækinu til vinninga í báðum leikjunum í
samræmi við ákvæði reglugerðarinnar og við sérstök tækifæri þar sem lagt er
fram fé frá fyrirtækinu til vinninga. Stjórnin skal leita samþykkis
dómsmálaráðuneytisins fyrir slíkum framlögum og fyrirkomulagi útdráttar.
5.7 Komi í ljós við útdrátt í
Lottó 5/38 að:
a) enginn þátttakandi hafi allar
5 aðaltölur réttar, skal vinningsfjárhæð þess flokks, án viðbótar samkvæmt lið
5.5.1.a, yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá allar fimm
aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með
allar aðaltölur réttar í þeirri viku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar
næstu viku o.s.frv.
b) enginn þátttakandi hafi 4
aðaltölur réttar auk bónustölu skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til
næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 4 aðaltölur réttar auk bónustölu í
þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með 4 aðaltölur réttar auk
bónustölu í þeirri leikviku flyst vinningsupphæðin áfram til þar næstu viku
o.s.frv.
c) enginn þátttakandi hafi fengið
4 aðaltölur réttar yfirfærist vinningur þess flokks til þeirra er fá vinning
fyrir þrjár aðaltölur réttar.
5.8 Komi í ljós við útdrátt í
Víkingalottói að:
a) enginn þátttakandi hafi allar
6 aðaltölur réttar, skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu
leikviku og koma í hlut þeirra er fá allar sex aðaltölur réttar í þeirri
leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með allar aðaltölur réttar í
þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.
b) enginn þátttakandi hafi 5
aðaltölur réttar auk bónustölu skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til
næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 5 aðaltölur réttar auk bónustölu í
þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með 5 aðaltölur réttar auk
bónustölu í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku
o.s.frv.
c) enginn þátttakandi hafi 5
aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku
og koma í hlut þeirra er fá 5 aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði enginn
þátttakandi með 5 aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin
áfram til þar næstu viku o.s.frv.
d) enginn þátttakandi hafi 4
aðaltölur réttar yfirfærist vinningur þess flokks til þeirra er fá vinning
fyrir 3 aðaltölur réttar auk bónustölu.
6. Vinningstölur.
Tölfræðilegar vinningslíkur í
talnagetraununum eru sem hér segir:
|
Lottó 5/38:
|
|
|
Fimm aðaltölur
|
1:501.942
|
|
Fjórar aðaltölur og bónustala
|
1:100.388
|
|
Fjórar aðaltölur
|
1:3.137
|
|
Þrjár aðaltölur
|
1:95
|
|
Tvær aðaltölur og bónustala
|
1:101
|
|
Jóker:
|
|
|
Fimm réttar tölur
|
1:100.000
|
|
Fjórar réttar tölur
|
1:10.000
|
|
Þrjár réttar tölur
|
1:1.000
|
|
Tvær réttar tölur
|
1:100
|
|
Heildarupphæð vinninga er
46,25% að meðaltali.
|
|
|
Víkingalottó:
|
|
|
Sex réttar aðaltölur
|
1:12.271.512
|
|
Fimm réttar aðaltölur og
bónustala
|
1:1.022.626
|
|
Fimm réttar aðaltölur
|
1:52.442
|
|
Fjórar réttar aðaltölur
|
1:950
|
|
Þrjár réttar aðaltölur og
bónustala
|
1:393
|
7. Greiðsla vinninga.
7.1 Þátttökukvittunum með þremur
eða fleiri vinningstölum ber að framvísa til söluaðila. Þar til nafnritun á sér
stað aftan á þátttökukvittun er litið á handhafa hennar sem eiganda. Þegar
nafnritun hefur átt sér stað skal litið á þann er ritað hefur nafn sitt sem
réttan eiganda og rétthafa til vinnings. Hafi fleiri en einn skráð nafn sitt
sem eigandi á bakhlið þátttökukvittunar, þurfa þeir að kvitta fyrir vinningi
eða gefa umboð til móttöku hans.
7.2 Vinningar, sem ekki nema kr.
15.000,- skulu greiddir út hjá söluaðila frá fyrsta virkum degi eftir útdrátt.
Vinningar, sem nema kr. 15.000,-
eða meira, skulu greiddir frá aðalskrifstofu Íslenskrar getspár innan tveggja
vikna frá því að þátttökukvittun er framvísað til söluaðila eða aðalskrifstofu.
Heimilt er að draga greiðslu vinninga, sem nema kr. 50.000,- eða meira, til
þess tíma að kærufrestur samkvæmt lið 9.1 er liðinn eða kærur hafa verið
úrskurðaðar, hafi kæra borist. Þegar um vinning að fjárhæð kr. 15.000,- eða
meira er að ræða, skal vinningshafi framvísa þátttökukvittun sinni ásamt
útfylltu útborgunareyðublaði, sem söluaðili lætur honum í té, til einhvers
söluaðila eða aðalskrifstofu. Skal hann fá í hendur kvittað eintak
útborgunareyðublaðsins til staðfestingar á afhendingu greiðslu vinningsins um
leið og gengið hefur verið úr skugga um að leikreglum hafi verið fylgt. Vextir
reiknast ekki á vinninga.
7.3 Vinninga skal vitja innan eins
árs frá útdráttardegi ella fellur niður réttur vinningshafa til hans.
8. Form þátttökukvittunar.
8.1 Þátttökukvittun er því aðeins
gild, að notað sé þar til gert eyðublað, sem gefið er út af Íslenskri getspá,
og að hún hafi verið gefin út af söluaðila viðurkenndum af stjórn félagsins með
áritun úr sölukassa tengdum tölvukerfi þess. Þátttökukvittun má ekki vera
árituð á framhlið, brotin eða skemmd með einhverjum hætti, þannig að hætta sé á
að hún verði ekki læsileg fyrir tölvukerfi félagsins, eða fullnægi ekki kröfum
þess á annan hátt. Þegar þannig er ástatt getur félagið hafnað
þátttökukvittuninni. Þegar um rafræna þátttöku er að ræða eru kvittanir geymdar
miðlægt í móðurtölvu Íslenskrar getspár. Þátttakendur sem taka þátt með
rafrænum hætti geta prentað út eigin kvittun eða óskað eftir því að fá hana
senda í pósti eða tölvupósti. Ef mismunur er á þátttökukvittun í móðurtölvu og
prentaðri kvittun þá gildir sú í móðurtölvunni.
9. Kærur.
9.1 Rísi ágreiningur varðandi
framkvæmd þessara talnagetrauna, skal viðkomandi þátttakandi senda skriflega
kæru, sem skal hafa borist aðalskrifstofu Íslenskrar getspár fyrir kl. 16 á
tuttugasta og fyrsta degi frá og með útdráttardegi að telja. Úrskurðaraðili
skipaður af dómsmálaráðuneytinu samkvæmt lið 10.2 úrskurðar um kæruna innan 15
daga frá því að kærufrestur rann út. Kærur vegna 1. vinnings í Víkingalottói
sem nema 200.000 ECU eða meiru skulu þó úrskurðaðar af aðalstjórn Víkingalottós
samkvæmt lið 3.4 í starfsreglum fyrir Víkingalottó.
10. Eftirlit.
10.1 Dómsmálaráðuneytið skipar
eftirlitsmenn til þriggja ára í senn til að annast eftirlit með allri framkvæmd
talnagetrauna Íslenskrar getspár.
10.2 Til að úrskurða kærur
samkvæmt lið 9.1 skipar dómsmálaráðuneytið til þriggja ára í senn mann sem
fullnægir skilyrðum til að vera dómari og einnig varamann sem fullnægir sömu
skilyrðum.
10.3 Eftirlit með tölvukerfi
Íslenskrar getspár skal vera í höndum endurskoðunarskrifstofu sem ráðuneytið
samþykkir.
10.4 Kostnaður við almennt
eftirlit með getraunastarfseminni, eftirlit með útdrætti vinninga og meðferð
kæra greiðist af Íslenskri getspá samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins.
11. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er
samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26 2. maí 1986, öðlast gildi 3.
janúar 2000. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 105 frá 18. febrúar 1998
ásamt síðari breytingu.
Dóms- og kirkjumálaráðneytinu, 10. desember 1999.
Sólveig
Pétursdóttir.
Björn Friðfinnsson.
Word útgáfa af reglugerð