|
|
891/2000
felld brott með rg. nr. 401/2005
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð fyrir vatnsveitur sveitarfélaga,
nr. 421/1992, með síðari breytingum.
1. gr. Eftirtaldar breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:
| a. | 2. mgr. orðast svo:
Stofn til álagningar vatnsgjalds á allar fasteignir skal vera fasteignamat þeirra. |
| b. | Í stað orðanna „hver verður líklegur álagningarstofn“ í 3. mgr. kemur: hvert verður líklegt fasteignamat. |
| c. | Í stað orðanna „0,3 hundraðshlutum af álagningarstofni“ í 4. mgr. kemur: 0,5 hundraðshlutum af fasteignamati. |
2. gr. Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 81/1991, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2001.
Félagsmálaráðuneytinu, 5. desember 2000.
F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson.
Guðjón Bragason.
Stofnreglugerð: 421/1992 - Reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga.
|