Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

885/2002

Reglugerð um sektir vegna brota á lögum um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi.

1. gr.

Brot á ákvæðum 4. gr. laga um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi, nr. 73 31. maí 2001, varða sektum að fjárhæð kr. 25.000.
Heimilt er að víkja frá ákvæðum 1. mgr. ef veigamikil rök mæla með því.

2. gr.

Um innheimtu sekta samkvæmt 1. gr. og um vararefsingu sektanna gilda ákvæði 52. gr. og 4.–5. mgr. 54. gr. almennra hegningarlaga.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 15. gr. laga um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi, nr. 73 31. maí 2001, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 9. desember 2002.

Sólveig Pétursdóttir.

Björn Friðfinnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.