Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

884/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1126/2014 um skilgreiningu sameiginlegra verkefna, um ákvörðun stjórnunarhátta og um tilgreiningu hvata sem styðja við framkvæmd evrópsku mynsturáætlunarinnar um rekstrarstjórnun flugumferðar.

1. gr.

4. gr. reglugerðar nr. 1126/2014 breytist þannig að við bætist eftirfarandi stafliður, b-liður:

  1. Reglugerð (ESB) nr. 716/2014 frá 27. júní 2014 um fyrstu sameiginlegu áætlunina (Pilot Common Project) til stuðnings framkvæmdar á evrópsku mynsturáætluninni um rekstrarstjórnun flugumferðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2015 frá 20. mars 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 23. apríl 2015, bls. 302.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 6. október 2015.

F. h. r.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.