Félagsmálaráðuneyti

884/2000

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 2/1999 um útgáfu húsbréfa á árinu 1999 og 2000 fyrir Íbúðalánasjóð, sbr. reglugerð nr. 607/1999, 115/2000 og 651/2000. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 2/1999 um útgáfu húsbréfa á árinu 1999 og 2000

fyrir Íbúðalánasjóð, sbr. reglugerð nr. 607/1999, 115/2000 og 651/2000.

 

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar verður:

Reglugerð um útgáfu húsbréfa á árunum 1999, 2000 og 2001 fyrir Íbúðalánasjóð.

 

2. gr.

3. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar, með síðari breytingu, orðast svo:

Samanlögð fjárhæð samþykktra skuldabréfaskipta úr 1. og 2. flokki 1998 skal ekki vera umfram 30.142 milljónir króna á árinu 2000 miðað við reiknað markaðsvirði húsbréfanna. Þannig skal samanlögð fjárhæð samþykktra skuldabréfaskipta 1998, 1999, 2000 og 2001 úr 1. og 2. flokki húsbréfa 1998 ekki fara umfram 83.849 milljónir króna miðað við fyrrnefnt reiknað markaðsvirði.

 

3. gr.

3. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar, með síðari breytingu, orðast svo:

Húsbréfaflokkunum skal lokað eigi síðar en 15. mars 2001.

 

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 24. gr. og 29. gr. laga nr. 44/1998 um húsnæðismál, öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 14. desember 2000.

 

Páll Pétursson.

Óskar Páll Óskarsson.

 

 

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica