Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

866/2000
Nr

REGLUGERÐ

um aðskilnað fjarskiptaneta og kapalkerfa

fyrir sjónvarp sem eru í eigu sama lögaðila.

 

1. gr.

Fjarskiptafyrirtæki er óheimilt að starfrækja í nafni eins lögaðila kapalkerfi fyrir sjónvarp og almennt fjarskiptanet þegar:

a.         lögaðilanum er stýrt af ríkinu eða nýtur sérstakra réttinda samkvæmt lögum og,

b.         lögaðilinn hefur markaðsráðandi stöðu á umtalsverðum hluta innri markaðar á Evrópska efnahagssvæðinu á sviði almennra fjarskiptaneta og almennrar talsímaþjónustu og,

c.         lögaðilinn starfrækir kapalkerfi fyrir sjónvarp sem hefur verið byggt í skjóli sérréttinda eða einkaleyfis á sama svæði.

Reglugerðin gildir ekki fyrir breiðbandsnet.

Póst- og fjarskiptastofnun skal tryggja að farið sé eftir ákvæðum 1. mgr.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 59. gr. laga nr. 107/1999 um fjarskipti og með hliðsjón af tilskipun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins 1999/64/EB frá 23. júní 1999 um breytingu á tilskipun 90/388/EBE til þess að tryggja að fjarskiptanet og kapalkerfi fyrir sjónvarp í eigu eins rekstraraðila séu aðskildir lögaðilar, öðlast þegar gildi.

 

Samgönguráðuneytinu, 28. nóvember 2000.

 

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

 

Word útgáfa af reglugerð

866-2000.doc - 866-2000.doc



Breytingar:
700/2005 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 866/2000 um aðskilnað fjarskiptaneta og kapalkerfa fyrir sjónvarp sem er í eigu sama lögaðila.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt