Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

864/2002

Hafnað vegna þess að lagatilvísun vantar!

REGLUGERÐ


um breytingu á reglugerð nr. 120/2000, um innstæðutryggingar
og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.

1. gr.
Við 10. gr. bætist eftirfarandi málsl.: Þessi grein gildir ekki um sameiginlega fjárfestingu í verðbréfum.


2. gr.
Við 3. mgr. 12. gr. bætast eftirfarandi málsl.: Viðskiptavinum skal greint frá því að viðbótartrygging falli niður og hvenær hún falli úr gildi. Útibú skal á afgreiðslustöðum sínum hafa til reiðu skriflegar upplýsingar um aðild sína að sjóðnum. Skulu upplýsingarnar vera á íslensku og ávallt til reiðu þannig að auðvelt sé að nálgast þær.


3. gr.
Við 3. mgr. 15. gr. bætast eftirfarandi málsl.: Útibú skal á afgreiðslustöðum sínum hafa til reiðu skriflegar upplýsingar um aðild sína að sjóðnum. Skulu upplýsingarnar vera á íslensku og ávallt til reiðu þannig að auðvelt sé að nálgast þær.


4. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.


Viðskiptaráðuneytinu, 6. desember 2002.

Valgerður Sverrisdóttir.
Benedikt Árnason.

    nr_864_2002.doc
Stofnreglugerð:
120/2000 - Reglugerð um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt