Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

855/2007
felld brott með rg. nr. 327/2010

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um íblöndun bætiefna í matvæli, nr. 526/2006.

1. gr.
3. gr. orðist svo:
Heimilt er að blanda þeim bætiefnum í matvæli sem tilgreind eru í viðauka, töflu 1 við reglugerð þessa í því formi sem tilgreint er í töflu 2.

Íblöndun bætiefna í óunnin matvæli svo sem kjöt, fisk, ávexti og grænmeti er óheimil.

Framleiðandi eða dreifingaraðili skal tilkynna um íblöndun bætiefna í matvæli til Umhverfisstofnunar og afhenda sýnishorn af merkimiða vörunnar.

Merkja skal næringargildi matvæla sem í er blandað bætiefnum. Merkingin skal vera í samræmi við 9. gr. reglugerðar um merkingu næringargildis matvæla, nr. 586/1993 og miða við heildarmagn bætiefna í vörunni þegar íblöndunin á sér stað.

Umhverfisstofnun getur gefið út leiðbeiningar um ásættanlegt hámarksmagn tiltekinna bætiefna í matvæli.

Komi fram rökstuddur grunur um að vara, sem reglugerð þessi nær til, sé hættuleg heilsu manna er heimilt að takmarka eða banna framleiðslu, innflutning og sölu á viðkomandi vöru sbr. 28. og 29. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.


2. gr.
Við reglugerðina bætist viðauki svohljóðandi:
Tafla 1: Listi yfir þau vítamín og steinefni sem heimilt er að blanda í matvæli.

1. Vítamín2. Steinefni
A-vítamín Kalsíum
D-vítamín Magnesíum
E-vítamín Járn
K-vítamín Kopar
B1-vítamín Joð
B2-vítamín Sink
Níasín Mangan
Pantóþensýra Natríum
B6-vítamín Kalíum
FólatSelen
B12-vítamín Króm
Bíótín Mólybden
C-vítamín Flúoríð
Klóríð
Fosfór


    Tafla 2: Form vítamína og steinefna í töflu 1.

    1. Vítamín
    A-VÍTAMÍNNÍASÍN
    a) retínóla) nikótínsýra
    b) retínýlasetatb) nikótínamíð
    c) retínýlpalmítat
    d) beta-karótínPANTÓÞENSÝRA
    a) Kalsíum-D-pantóþenat
    D-VÍTAMÍNb) Natríum-D-pantóþenat
    a) kólíkalsíferólc) dexpanþenól
    b) ergókalsíferól
    B6-VÍTAMÍN
    E-VÍTAMÍNa) pýridoxínhýdróklóríð
    a) D-alfa-tókóferólb) pýridoxín 5'-fosfat
    b) DL-alfa-tókóferólc) pýridoxíndípalmitat
    c) D-alfa tókóferýlasetat
    d) DL-alfa-tókóferýlasetatFÓLAT
    e) D-alfa-tókóferýlsúksínsýraa) teróýlmónóglútamínsýra
    K-VÍTAMÍNB12-VÍTAMÍN
    a) fýllókínon (fýtómenadíon)a) sýanókóbalamín
    b) hýdroxókóbalamín
    B1-VÍTAMÍN
    a) þíamínhýdróklóríðBÍÓTÍN
    b) þíamínmónónítrata) D-bíótín
    B2-VÍTAMÍNC-VÍTAMÍN
    a) ríbóflavína) L-askorbínsýra
    b) natríumríbóflavín-5'-fosfatb) natríum L-askorbat
    c) kalsíum L-askorbat
    d) kalíum L-askorbat
    e) L-askorbýl-6-palmítat


    2. Steinefni
    kalsíumkarbónatsinkasetat
    kalsíumklóríðsinkklóríð
    kalsíumsalt af sítrónusýrusinksítrat
    kalsíumglúkonatsinkglúkonat
    kalsíumglýserófosfatsinklaktat
    kalsíumlaktatsinkoxíð
    kalsíumsölt af ortófosfórsýrusinkkarbónat
    kalsíumhýdroxíðsinksúlfat
    kalsíumoxíð
    kalsíumsúlfat
    mangankarbónat
    magnesíumasetatmanganklóríð
    magnesíumkarbónatmangansítrat
    magnesíumklóríðmanganglúkonat
    magnesíumsölt af sítrónusýrumanganglýserófosfat
    magnesíumglúkonatmangansúlfat
    magnesíumglýserófosfat
    magnesíumsölt af ortófosfórsýru
    magnesíumlaktatnatríumbíkarbónat
    magnesíumhýdroxíðnatríumkarbónat
    magnesíumoxíðnatríumsítrat
    magnesíumsúlfatnatríumglúkonat
    natríumlaktat
    ferrókarbónatnatríumhýdroxíð
    ferrósítratnatríumsölt af ortófosfórsýru
    ferríammoníumsítratnatríumselenat
    járnglúkonatnatríumvetnisselenít
    ferrófúmaratnatríumselenít
    ferrínatríumdífosfatnatríumflúoríð
    ferrólaktat
    ferrósúlfat
    ferrídífosfat (ferrípýrófosfat)kalíumflúoríð
    ferrísakkaratkalíumbíkarbónat
    járn (afoxað úr karbonýl, rafgreint eða kalíumkarbónat
    vetnisafoxað)kalíumklóríð
    kalíumsítrat
    kúpríkarbónatkalíumglúkonat
    kúprísítratkalíumglýserófosfat
    kúpríglúkonatkalíumlaktat
    kúprísúlfatkalíumhýdroxíð
    koparlýsínflókikalsíumsölt af ortófosfórsýru
    natríumjoðíðkróm(III)klóríð og hexahýdrat þess
    natríumjoðatkróm(III)súlfat og hexahýdrat þess
    kalíumjoðíðammoníummólýbdat (mólýbden (VI))
    kalíumjoðatnatríummólýbdat (mólýbden (VI))



    3. gr.
    Reglugerð þessi er sett með stoð í 17., 18. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, sbr. og lög um nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

    Reglugerðin öðlast þegar gildi.


    Ákvæði til bráðabirgða orðist svo:
    Tilkynna skal sbr. 3. gr. um vörur sem falla undir reglugerð þessa og sem þegar eru á markaði við gildistöku hennar innan árs frá gildistöku reglugerðarinnar.

    Heimilt er að selja vörur sem ekki samræmast ákvæðum reglugerðar þessarar og settar eru á markað eða merktar fyrir gildistöku reglugerðar þessarar svo lengi sem þær hafa geymsluþol til, þó ekki lengur en til 31. desember 2009.


    Umhverfisráðuneytinu, 26. september 2007.

    F. h. r.
    Magnús Jóhannesson.
    Sigríður Auður Arnardóttir.

    B_nr_855_2007.doc

    Stofnreglugerð:
    526/2006 - Reglugerð um íblöndun bætiefna í matvæli.

     
    Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
    Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
    Prentvænt