Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

848/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 274/2006, um skilyrði undanþágu frá greiðslu olíugjalds og um greiðslu sérstaks kílómetragjalds.

1. gr.

Við B. lið 3. tölul. 1. gr. bætist nýr stafliður:

Sérhæfðar afgreiðslubifreiðar sem eru sérútbúnar til að afgreiða eldsneyti á flugvélar og eru eingöngu notaðar á lokuðu svæði flugvallar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. mgr. 4. gr. laga nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald, og öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 1. október 2009.

F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.

Helena E. Snorradóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.