Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

835/2012

Reglugerð um tryggingu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. í tekjum sveitarfélags.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um veð sem sveitarfélag veitir Lánasjóði sveitarfélaga ohf. í tekjum sínum, samkvæmt heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sem tryggingu fyrir lánum sem það tekur hjá lánasjóðnum og fyrir ábyrgðum sem sveitarfélag veitir vegna fyrirtækis eða stofnunar í sinni eigu eða í sameign með öðrum opinberum aðilum.

2. gr. Tegundir veðs.

Sveitarfélag getur veitt Lánasjóði sveitarfélaga ohf. veð í útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í eftirtöldum tilvikum:

  1. Vegna lána sem sveitarfélagið tekur sjálft, sbr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga.
  2. Vegna einfaldrar ábyrgðar sem sveitarfélag gengst í vegna lántöku félags eða stofnunar, sbr. 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga.
  3. Vegna einfaldrar ábyrgðar sem sveitarfélag gengst í vegna lántöku félags eða stofnunar sem sveitarfélagið á og rekur í samvinnu við önnur sveitarfélög eða aðra opinbera aðila, sbr. 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Vegna einfaldrar ábyrgðar sem sveitarfélag hefur samþykkt sérstaklega vegna lántöku byggðasamlags sem sveitarfélagið á aðild að, sbr. 8. mgr. 94. gr. sveitarstjórnarlaga.

3. gr. Form veðyfirlýsingar.

Til að veðyfirlýsing sé gild skal hún samþykkt af sveitarstjórn viðkomandi sveitarfélags á sveitarstjórnarfundi og uppfylla önnur skilyrði sem sett eru í lögum. Í sumarleyfi sveitarstjórnar getur byggðarráð með sama hætti samþykkt veðyfirlýsingu með endanlegum hætti.

Veðyfirlýsingar skal sérstaklega getið í skuldarviðurkenningu eða ábyrgðaryfirlýsingu og skal sveitarstjórn eða sá sem undirritar skjalið í umboði hennar staðfesta hana með undirritun sinni.

4. gr. Vanskil sveitarfélags.

Komi til þess að sveitarfélag lendi í vanskilum við lánasjóðinn með lán sem falla undir 1. tölul. 2. gr. eða sveitarfélag sé krafið um greiðslu vegna ábyrgðar sem það hefur veitt lánasjóðnum vegna lántöku stofnunar, félags eða byggðasamlags, sbr. 2., 3. eða 4. tölul. 2. gr. og greiðsluskyldu hefur ekki verið sinnt, sendir lánasjóðurinn um það tilkynningu, fyrst til sveitarstjóra og því næst til sveitarstjórnar með upplýsingum um þær fjárhæðir sem í vanskilum eru. Slík tilkynning er send til sveitarstjóra 30 dögum eftir gjalddaga og svo til sveitarstjórnar 45 dögum eftir gjalddaga. Lánasjóðurinn getur sent innanríkisráðuneytinu tilkynningu með upplýsingum um þær fjárhæðir sem í vanskilum eru, 60 dögum eftir gjalddaga. Afrit af tilkynningu til innanríkisráðuneytisins skal senda til sveitarstjórnar.

5. gr. Innheimta vanskila.

Ef veðyfirlýsing uppfyllir skilyrði laga eða ef sveitarfélag er í vanskilum og Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur sent um það tilkynningu til innanríkisráðuneytisins skv. 4. gr., skal innanríkisráðherra án tafar veita lánasjóðnum heimild til að ganga að veðinu. Getur lánasjóðurinn þá sent kröfu um greiðslu vanskilanna til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna framlaga úr honum eða Fjársýslu ríkisins vegna útsvarstekna. Ef það er nægilegt að mati lánasjóðsins skal hann takmarka kröfuna við framlög til sveitarfélags úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Kröfur skv. 1. mgr. skulu greiddar beint til lánasjóðsins af framlögum til sveitarfélaga eftir því sem þau koma til greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og innheimtum útsvarstekjum eftir því sem þær koma til greiðslu hjá Fjársýslu ríkisins.

6. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 123/2006 um tryggingar Lánasjóðs sveitarfélaga í tekjum sveitarfélags.

Innanríkisráðuneytinu, 26. september 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.