Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

833/2009

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um almannatryggingar
(lífeyristryggingar, atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi) (XV).

1. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 592/2008 frá 17. júní 2008, um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, skal öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði þeirra lúta að lífeyristryggingum, atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2009 frá 5. febrúar 2009 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerð (EB) nr. 592/2008 fjallar að hluta til um sjúkratryggingar, slysatryggingar, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um sjúkra- og slysatryggingar. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.


2. gr.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2009 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 16, 19. mars 2009, bls. 15, og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 592/2008 eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð þessari.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. september 2009.

Árni Páll Árnason.
Ágúst Þór Sigurðsson.

B_nr_833_2009_an_fylgiskjals.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt