Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

831/2000

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar
(atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingar- og foreldraorlofi (III)).

1. gr.
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1223/98 frá 4. júní 1998, um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja og reglugerð (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71, skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 33/1999 frá 26. mars 1999 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerðin (EB) nr. 1223/98 fjallar að hluta til um almannatryggingar, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið gefur út reglugerð um gildistöku þess hluta sem fjallar um réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar. Fjármálaráðuneytið gefur út reglugerð um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.


2. gr.
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1223/98 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 33/1999, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 46, bls. 78-94, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins nr. 811/2000.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysistryggingar með síðari breytingum og 35. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof, öðlast þegar gildi.


Félagsmálaráðuneytinu, 9. nóvember 2000.

Páll Pétursson.
Elín Blöndal.
    nr 831 2000.doc

     

    Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000
    Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dmr.stjr.is
    Prentvænt