|
|
830/2006
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð, nr. 456/1994 um fuglaveiðar
og nýtingu hlunninda af villtum fuglum, með síðari breytingum.
1. gr. 5. tl. 2. mgr. 8. gr. orðast svo:
Heimilt er að veiða rjúpu frá og með 15. október til og með 30. nóvember, frá og með fimmtudögum til og með sunnudögum á því tímabili, sbr. þó 9. gr.
2. gr. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 28. september 2006.
Jónína Bjartmarz. Magnús Jóhannesson.

Stofnreglugerð: 456/1994 - Reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum.
|