Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

821/2011

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um Lánasjóð íslenskra námsmanna, nr. 478/2011.

1. gr.
Við 3. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna er heimilt í sérstökum tilvikum að leggja sterk tengsl umsækjanda við Ísland að jöfnu við að uppfyllt séu skilyrði lánveitingar samkvæmt 1. mgr.


2. gr.
Í stað orðsins „skilyrðum“ í 1. – 4. tölul. 4. gr. kemur: skilmálum.


3. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. 6. mgr. 13. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 21/1992, um Lánasjóð íslenskra námsmanna, með síðari breytingum, og öðlast gildi við birtingu.


Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 2. september 2011.

Svandís Svavarsdóttir.
Ásta Magnúsdóttir.

B_nr_821_2011.docx

Stofnreglugerð:
478/2011 - Reglugerð um Lánasjóð íslenskra námsmanna.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt