Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Stofnreglugerð

821/2006

Reglugerð um innleiðingu ákvörðunar nr. 25/67 frá 22. júní 1967 varðandi reglugerð um framkvæmd 3. mgr. 66. gr. sáttmálans um undanþágu frá fyrirfram veittu leyfi.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í 15. tl. XIV. viðauka, gildir hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Eftirtaldar EB-gerðir gilda því hér á landi:

Ákvörðun nr. 25/67 frá 22. júní 1967 varðandi reglugerð um framkvæmd 3. mgr. 66. gr. sáttmálans um undanþágu frá fyrirfram veittu leyfi.

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2495/78/KSE frá 20. október 1978 um breytingu á ákvörðun nr. 25/67 frá 22. júní 1967 varðandi reglugerð um framkvæmd 3. mgr. 66. gr. stofnsáttmála Kola- og stálbandalags Evrópu með undanþágu frá fyrirfram veittu leyfi.

2. gr.

Ákvörðun nr. 25/67 frá 22. júní 1967, sbr. ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2495/78/KSE, hefur verið breytt með eftirfarandi reglugerð og gildir hún einnig hér á landi samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/94 frá 21. mars 1994:

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 3654/91/KSE frá 13. desember 1991 um breytingu á ákvörðun nr. 25/67/KSE um undanþágu frá fyrirfram veittu leyfi með hliðsjón af framkvæmd 3. mgr. 66. gr. sáttmálans.

3. gr.

Ákvörðun nr. 25/67 hefur áður verið birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, sérriti S41, bls. 116-120.

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2495/78/KSE hefur áður verið birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, sérriti S41, bls. 121-123.

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 3654/91/KSE hefur áður verið birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, sérstakri útgáfu, bók 5, bls. 26-27.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Með reglugerð þessari fellur úr gildi m-liður 2. gr. reglugerðar nr. 594/1993 um efnislegar samkeppnisreglur samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og e-liður 4. gr. reglugerðar nr. 594/1993, sbr. reglugerð nr. 375/1994.

Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Jónína S. Lárusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.