Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

819/2006

REGLUGERÐ
um innleiðingu ákvörðunar nr. 24/54 frá 6. maí 1954 varðandi reglugerð
um framkvæmd 1. mgr. 66. gr. sáttmálans um yfirráð í fyrirtæki.

1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í 14. tl. XIV. viðauka, gildir hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Eftirtalin EB-gerð gildir því hér á landi:

Ákvörðun nr. 24/54 frá 6. maí 1954 varðandi reglugerð um framkvæmd 1. mgr. 66. gr. sáttmálans um yfirráð í fyrirtæki.


2. gr.
Ákvörðun nr. 24/54 hefur áður verið birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, sérriti S41, bls. 114-115.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Með reglugerð þessari fellur úr gildi l-liður 2. gr. reglugerðar nr. 594/1993 um efnislegar samkeppnisreglur samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.


Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.

F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Jónína S. Lárusdóttir.

B_nr_819_2006.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt