Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

818/2010

Reglugerð um samþykktir fyrir málsóknarfélög.

1. gr.

Reglugerð þessi hefur að geyma almennar samþykktir fyrir málsóknarfélög og gilda þær nema málsóknarfélagi hafi verð settar sérstakar samþykktir, sbr. 1. mgr. 19. gr. a laga um meðferð einkamála, nr. 19/1991, sbr. lög nr. 117/2010.

2. gr.

Félagið hefur heiti samkvæmt því sem ákveðið er í stofnsamþykkt eða á stofnfundi. Varnarþing félagsins er í Reykjavík. Félagið er almennt félag.

Félagið þarf ekki að skrá í fyrirtækjaskrá.

3. gr.

Félagið hefur þann tilgang að höfða dómsmál um það sakarefni sem lá því til grundvallar að félagið var stofnað. Félaginu er ekki heimilt að starfa við annað en þann málarekstur.

Dómsmál skv. 1. mgr. skal félagið reka í eigin nafni fyrir hönd félagsmanna og í umboði þeirra. Félagið fer í hvívetna með forræði á málinu svo bindandi sé fyrir félagsmann, þar á meðal til að fella málið niður eða ljúka því með dómsátt. Komi til þess að fullnægja þurfi dómi eða dómsátt skal félagið í eigin nafni leita þeirrar fullnustu fyrir hönd félagsmanna.

4. gr.

Þrír aðilar hið minnsta skulu vera aðilar að félaginu. Þeir einir geta verið félagsmenn sem eiga aðild að því dómsmáli sem félagið er stofnað til að reka.

5. gr.

Félagsmenn bera fulla og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins.

6. gr.

Félagsgjöld má leggja á til að standa straum af kostnaði við starfsemi félagsins í samræmi við tilgang þess. Félagsgjöld skulu ákveðin á stofnfundi eða aðalfundi.

7. gr.

Félagsfundur fer með æðsta vald félagsins. Fundur skal haldinn samkvæmt ákvörðun félagsstjórnar eða að kröfu tíunda hluta félagsmanna.

Félagsstjórn skal með minnst viku fyrirvara boða til félagsfundar með tryggilegum hætti. Dagskrá fundarins skal liggja fyrir eigi síðar en þremur dögum fyrir fundinn. Félagsmaður á rétt á því að fá tiltekið mál tekið á dagskrá fundarins ef hann krefst þess skriflega til félagsstjórnar áður en frestur til að taka saman dagskrána er liðinn.

Félagsfundur kýs fundarstjóra og fundarritara sem skráir fundargerð.

Meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum mála á félagsfundi.

8. gr.

Aðalfundur skal haldinn árlega í september. Á dagskrá aðalfundar skal meðal annars vera:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Reikningar félagsins.
  3. Ákvörðun um fjölda stjórnarmanna og kosning þeirra.
  4. Kosning tveggja skoðunarmanna.
  5. Ákvörðun félagsgjalds.
  6. Önnur mál.

9. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð þremur mönnum eða færri. Stjórnin kýs sér formann og skiptir með sér verkum. Ef stjórnarmaður er einn er hann formaður félagsins.

Formaður boðar til stjórnarfunda. Fund skal halda ef um það kemur ósk frá stjórnarmanni. Stjórnarfundi skal boða með tryggilegum hætti og hæfilegum fyrirvara. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundi. Nú eru atkvæði jöfn og ræður þá atkvæði formanns.

Stjórn félagsins tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Stjórn félagsins sér um að leita fullnustu réttinda að máli loknu ef því er að skipta. Stjórn félagsins skuldbindur það gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns fullnægjandi.

Ákvarðanir stjórnar skulu færðar í fundargerð sem staðfest skal af stjórn.

Stjórn skal hafa aðgengilega skrá um félagsmenn. Skylt er að veita þeim upplýsingar úr skránni sem hagsmuna hafa að gæta.

10. gr.

Reikningsár félagsins er almanaksárið.

Ársreikningur félagsins skal áritaður af skoðunarmönnum.

11. gr.

Tillaga um samþykktir félagsins eða breytingar á þeim skal tekin fyrir á félagsfundi og skal greina frá efni tillögunnar í dagskrá fundarins.

12. gr.

Nú hefur félagið lokið tilgangi sínum samkvæmt 3. gr. og skal því þá slitið.

Við félagsslit skal tekin ákvörðun um hvernig farið verði með eignir og skuldir félagsins.

13. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 19. gr. a laga um meðferð einkamála, nr. 19/1991, sbr. lög nr. 117/2010, tekur þegar gildi.

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 12. október 2010.

Ögmundur Jónasson.

Bryndís Helgadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.