Utanríkisráðuneyti

817/2015

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarus nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Belarus nr. 97/2012 hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ frá 15. október 2012 um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 1.
  1.1 Ákvörðun ráðsins 2013/308/SSUÖ frá 24. júní 2013 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 2.
  1.2 Ákvörðun ráðsins 2013/534/SSUÖ frá 29. október 2013 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 3.
  1.3 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/24/SSUÖ frá 20. janúar 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 4.
  1.4 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/439/SSUÖ frá 8. júlí 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 4a.
  1.5 Ákvörðun ráðsins 2014/750/SSUÖ frá 30. október 2014 um breytingu á ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarus, fylgiskjal 4b.
2. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 frá 18. maí 2006 um þvingunaraðgerðir gegn Lúkasjenkó forseta og tilteknum embættismönnum í Belarus, fylgiskjal 5.
  2.1 Reglugerð ráðsins (EB) nr. 646/2008 frá 8. júlí 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Lúkasjenkó forseta og tilteknum embættis­mönnum í Belarus, fylgiskjal 6.
  2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 84/2011 frá 31. janúar 2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Lúkasjenkó forseta og tilteknum embættismönnum í Belarus, fylgiskjal 7.
  2.3 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 588/2011 frá 20. júní 2011 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Lúkasjenkó forseta og tilteknum embættis­mönnum í Belarus, fylgiskjal 8.
  2.4 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 999/2011 frá 10. október 2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 9.
  2.5 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 354/2012 frá 23. apríl 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 10.
  2.6 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1014/2012 frá 6. nóvember 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 11.
  2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1054/2013 frá 29. október 2013 um fram­kvæmd 1. mgr. 8. gr. a í reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 12.
  2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins nr. 46/2014 frá 20. janúar 2014 um framkvæmd reglu­gerðar (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 13.
  2.9 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 740/2014 frá 8. júlí 2014 um framkvæmd reglu­gerðar (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 14.
  2.10 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1159/2014 frá 30. október 2014 um fram­kvæmd 1. mgr. 8. gr. a í reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarus, fylgiskjal 15.

Fylgiskjöl 2-4b og 12-15 eru birt sem fylgiskjöl 1-9 við reglugerð þessa. Fylgiskjal 2 (ákvörðun ráðsins 2013/308/SSUÖ) kemur í stað framkvæmdarákvörðunar ráðsins 2013/248/SSUÖ.

I. viðauki við reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006, eins og honum var breytt, sbr. fylgiskjal 5, er ekki birtur hér en þess í stað vísast í viðauka við ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ, eins og honum var breytt, sbr. fylgiskjal 1. II. viðauki við reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 er ekki birtur hér þar sem hann á ekki við, sbr. f-lið 3. gr. Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í 1. gr. b í reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006, er birtur sem viðauki (Annex) við fylgiskjal 5 við reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 758/2014, sbr. reglugerð nr. 294/2015 og nefnist þar "Skrá yfir varnartengdar vörur."

Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lög­fest­ingar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjár­muna.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 9. júlí 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDf-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica