Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

817/2011

Reglugerð um framkvæmd 14. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/16/EB að því er varðar víðtækar skoðanir á skipum.

1. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 428/2010 frá 20. maí 2010 um framkvæmd 14. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/16/EB að því er varðar víðtækar skoðanir á skipum, sem vísað er til í 56bc XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 135/2010 frá 10. desember 2010 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 428/2010 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 7. apríl 2011, bls. 102.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. mgr. 1. gr., sbr. 14. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 3. ágúst 2011.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.