|
|
811/2008
REGLUGERÐ
um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla með tilliti til aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
1. gr.
Gildissvið. Reglugerð þessi kveður á um hverjir teljast einstaklingar í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, skv. 12. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
2. gr.
Einstaklingar í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Einstaklingar í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í skilningi 12. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eru einstaklingar búsettir utan Íslands, sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu, ásamt nánustu fjölskyldu þeirra og nánum samstarfsmönnum.
Til háttsettra einstaklinga í opinberri þjónustu teljast:
| a) | þjóðhöfðingjar, ráðherrar og staðgenglar ráðherra eða aðstoðarráðherrar; |
| b) | þingmenn; |
| c) | hæstaréttardómarar, dómarar við stjórnlagadómstóla eða aðrir háttsettir dómarar við dómstóla þaðan sem niðurstöðu er ekki hægt að áfrýja nema í undantekningartilvikum; |
| d) | dómarar við endurskoðunarrétt eða stjórnarmenn seðlabanka; |
| e) | sendiherrar, staðgenglar sendiherra og háttsettir yfirmenn herja; |
| f) | fulltrúar í stjórn, framkvæmdastjórn eða eftirlitsstjórn fyrirtækja í eigu ríkis. |
Þeir sem taldir eru upp í a-e liðum 1. mgr. teljast einstaklingar í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, jafnvel þótt þeir gegni viðkomandi stöðum hjá Evrópusambandinu eða á alþjóðavettvangi.
Til nánustu fjölskyldu skv. 1. mgr. teljast:
| a) | maki; |
| b) | sérhver sambúðarmaki, sem samkvæmt landslögum hefur sömu stöðu og maki; |
| c) | börn og makar þeirra eða sambúðarmakar; |
| d) | foreldrar. |
Til náinna samstarfsmanna skv. 1. mgr. teljast:
| a) | einstaklingar sem vitað er að hafi verið raunverulegir eigendur lögaðila með einstaklingi, sem er eða hefur verið háttsettur og gegnt opinberri þjónustu; |
| b) | einstaklingar er átt hafa náin viðskiptatengsl við einstakling, sem er eða hefur verið háttsettur og gegnt opinberri þjónustu; |
| c) | einstaklingur sem er einn raunverulegur eigandi lögaðila sem vitað er að í reynd var stofnað til til hagsbóta fyrir einstakling sem er eða hefur verið háttsettur og gegnt opinberri þjónustu |
Nú hefur einstaklingur ekki verið háttsettur í opinberri þjónustu í eitt ár og telst hann þá ekki vera einstaklingur í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla.
3. gr.
Lögleiðing. Reglugerð þessi er sett með heimild í 28. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 64/2006.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 70/2006 frá 1. ágúst 2006 þar sem mælt er fyrir um framkvæmdaráðstafanir vegna tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/60/EB að því er varðar skilgreininguna á „einstaklingur í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla“ og tæknilegar kröfur varðandi einfaldaða skoðun með tilhlýðilegri kostgæfni á áreiðanleika viðskiptamanns og varðandi undanþágur á grundvelli fjármálastarfsemi sem stunduð er stöku sinnum eða að mjög takmörkuðu leyti, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 152/2006, dags. 8. desember 2006.
4. gr.
Gildistaka. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð um tilkynningarskyldu og könnun á áreiðanleika viðskiptamanns í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 550/2006.
Viðskiptaráðuneytinu, 11. ágúst 2008.
Björgvin G. Sigurðsson. Jónína S. Lárusdóttir.
|