Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

809/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 115, 13. febrúar 2006, um þorskfisknet.

1. gr.

2. mgr. 2. gr. fellur brott.

2. gr.

4. gr. breytist þannig:

  1. Í stað orðanna "Allir netadrekar" í 1. mgr. komi: Allar niðurstöður.
  2. Í stað orðsins "netadrekana" í 1. mgr. komi: niðurstöðurnar.
  3. Í stað orðsins "netadrekar" í 4. mgr. komi: niðurstöður.

3. gr.

Á eftir 7. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein er verður 7. gr. a, svohljóðandi:

Óheimilt er að stunda veiðar með þorskfisknetum og grásleppunetum á sama tíma.

Séu stundaðar veiðar á skötusel samtímis veiðum með þorskfisknetum vísast til reglugerðar um veiðar á skötusel í net.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 5. nóvember 2012 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. október 2012.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.