Reglugerð
um olíuúrgang.
I. KAFLI
Markmið, gildissvið o.fl.
Markmið.
1. gr.
1.1 Markmið reglugerðar þessarar er að
tryggja rétta meðhöndlun olíuúrgangs þannig að hann valdi ekki mengun.
Gildissvið.
2. gr.
2.1 Reglugerð þessi gildir um
meðhöndlun olíuúrgangs og skráningu. Reglugerðin gildir um atvinnurekstur hér á
landi og í mengunarlögsögunni. Jafnframt gildir reglugerð nr. 35/1994 um varnir
gegn olíumengun frá starfsemi í landi. Reglugerðin gildir um athafnir
einstaklinga eins og við getur átt.
Skilgreiningar.
3. gr.
3.1 Atvinnurekstur er hvers konar
starfsemi og framkvæmdir.
3.2 Brennslustöð fyrir olíuúrgang er
hvers kyns tæknibúnaður sem notaður er til að brenna spilliefni með oxun, hvort
sem hitinn sem myndast við brennsluna er nýttur eða ekki, þ.m.t. formeðferð sem
og hitasundrun eða önnur hitameðferð, t.d. plasmameðferð, enda séu afurðir hans
brenndar á eftir.
3.3 Eftirlit er athugun á ferli eða
starfsemi til að ákvarða samræmi þeirra við tilteknar kröfur.
3.4 Eftirlitsaðilar eru viðkomandi
heilbrigðisnefnd og Hollustuvernd ríkisins og einnig faggiltir skoðunaraðilar
sem starfa samkvæmt reglugerð þessari með takmarkaðar heimildir í samræmi við
24. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
3.5 Grunnolía er olía sem verður til
við endurmyndun úrgangsolíu.
3.6 Meðhöndlun olíuúrgangs er
söfnun, geymsla, pökkun, flokkun, flutningur, vinnsla, endurnotkun, endurnýting
og förgun hans, þ.m.t. eftirlit með slíkri starfsemi og umsjón með förgunarstöðvum
eftir að þeim hefur verið lokað.
Flokkun er aðgreining úrgangstegunda til þess að hægt sé að
endurnýta úrgangsefni og koma þeim úrgangi sem ekki nýtist til viðeigandi
förgunar.
Flutningur er það ferli þegar úrgangur frá einstaklingum og
lögaðilum er fluttur í atvinnuskyni til endurnotkunar, endurnýtingar eða
förgunar.
Endurmyndun er aðgerð til að hreinsa úrgang svo að hann eða hluti
hans komist í svipað eða sama form og hann var upphaflega.
Endurnotkun er notkun úrgangs sem ekki hefur verið beittur aðferðum
sem fram koma í V. viðauka við reglugerð um skrá yfir spilliefni og annan
úrgang.
Endurnýting er hvers konar nýting úrgangs, önnur en endurnotkun,
t.d. endurmyndun, sjá nánar V. viðauka reglugerðar um skrá yfir spilliefni og
annan úrgang.
Förgun er aðgerð eða ferli þegar úrgangi er umbreytt og
komið fyrir varanlega, sjá nánar aðferðir í IV. viðauka reglugerðar um skrá um
spilliefni og annan úrgang.
Pökkun er þegar úrgangur er settur í umbúðir til að gera
hann flutningshæfan og/eða til að geyma í lengri eða skemmri tíma.
Vinnsla er aðgerð sem ætluð er til að gera olíuúrgang hæfan
til endurnýtingar, þ.e. endurmyndun og brennsla.
3.7 Mengun er þegar örverur, efni og
efnasambönd og eðlisfræðilegir þættir valda óæskilegum og skaðlegum áhrifum á
heilsufar almennings, röskun lífríkis eða óhreinkun lofts, láðs eða lagar.
Mengun tekur einnig til ólyktar, hávaða, titrings, geislunar og varmaflæðis og
ýmissa óæskilegra eðlisfræðilegra þátta.
3.8 Mengunarvarnaeftirlit er
eftirlit með þeim þáttum sem eiga að fyrirbyggja eða draga úr mengun lofts,
láðs eða lagar, eftirlit með eiturefnum og hættulegum efnum og fræðsla um þessi
mál. Vöktun umhverfisins telst til mengunarvarnaeftirlits.
3.9 Móttökustöð er staður og aðstaða
þar sem tekið er við úrgangi til lengri eða skemmri geymslu, umhleðslu,
flokkunar eða annarrar meðhöndlunar. Þaðan fer úrgangur til förgunar eða
nýtingar, eða honum er fargað á staðnum.
3.10 Olíuúrgangur er hvers konar
smurnings- og iðnaðarolíur sem orðið hafa óhæfar til þeirrar notkunar sem þær
voru upphaflega ætlaðar, þ.á m. notuð brennsluolía fyrir vélar og gírkassaolía,
svo og smurolía, hverflaolía og vökvaþrýstiolía. Olíuúrgangur er spilliefni.
3.11 Spilliefni er úrgangur sem
merktur er með stjörnu * í I. viðauka með reglugerð um skrá yfir spilliefni og
annan úrgang og einnig annar úrgangur sem hefur einn eða fleiri eiginleika sem
tilteknir eru í III. viðauka með tilvitnaðri reglugerð.
3.12 Söfnunarstöð er staður og
aðstaða þar sem tekið er við úrgangi frá almenningi og/eða smærri fyrirtækjum.
Þaðan fer hann til endurnotkunar, endurnýtingar eða er fluttur til
móttökustöðva.
3.13 Úrgangur er hvers kyns efni eða
hlutir sem einstaklingar eða lögaðilar ákveða að losa sig við eða er gert að
losa sig við á tiltekinn hátt.
Tegundir úrgangs flokkaðar eftir
eiginleikum eru:
Úrgangur án spilliefna er úrgangur frá heimilum og atvinnurekstri
sem hefur svipaða eiginleika og gerð og heimilisúrgangur, t.d. matarleifar og
umbúðir, og úrgangur sem fellur til við framleiðslu, verslun og þjónustu, t.d.
pappír, timbur o.þ.h.
Spilliefni, sbr. skilgreiningu í 11. mgr.
Óvirkur úrgangur er úrgangur sem breytist ekki verulega
líf-, efna- eða eðlisfræðilega, t.d. múrbrot, gler og uppmokstur.
II. KAFLI
Umsjón.
Hlutverk Hollustuverndar ríkisins og heilbrigðisnefnda.
4. gr.
4.1 Heilbrigðisnefndum, undir yfirumsjón
Hollustuverndar ríkisins, og Hollustuvernd ríkisins ber að sjá um að ákvæðum
reglugerðarinnar sé framfylgt.
III. KAFLI
Meginreglur.
Meðhöndlun olíuúrgangs.
5. gr.
5.1 Draga skal eins og unnt er úr myndun
olíuúrgangs. Stuðla ber að endurmyndun og annarri endurnýtingu.
5.2
Öll meðhöndlun olíuúrgangs skal vera í samræmi við ákvæði reglugerðar
þessarar. Tryggja skal að við vinnslu olíuúrgangs sé beitt aðferðum sem valda
ekki mengun yfir leyfilegu hámarki.
5.3 Bannað er að losa olíuúrgang í
yfirborðsvatn, grunnvatn, í sjó eða í fráveitu, svo og í jarðveg.
5.4 Olíuúrgangi má ekki blanda saman við
annan úrgang.
5.5 Hollustuvernd ríkisins er heimilt að
leyfa að olíuúrgangi sé blandað saman við annan úrgang eða efni, einkum ef það
er gert til að auka öryggi við förgun eða endurnýtingu og á þann hátt að það
samrýmist kröfum um mengunarvarnir.
Hollustuvernd ríkisins skal upplýsa hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd um veitta
heimild.
Móttaka olíuúrgangs.
6. gr.
6.1 Einstaklingum og lögaðilum er annast
dreifingu og sölu á olíu er skylt að taka við olíuúrgangi frá skipum og frá
starfsemi í landi, einir eða í samvinnu við þá sem til þess hafa leyfi og
tryggja viðunandi förgun.
6.2 Að öðru leyti en greinir í 1. mgr. skal
flytja olíuúrgang til söfnunarstöðva eða móttökustöðva sem hafa fengið
starfsleyfi til að taka á móti slíkum úrgangi.
Geymsla olíuúrgangs o.fl.
7. gr.
7.1
Þeim aðilum sem olíuúrgangur fellur til hjá er skylt að tryggja að hann
sé geymdur á viðeigandi hátt og ber að skila honum til viðurkenndrar söfnunar-
eða móttökustöðvar.
7.2 Óheimilt er að blanda saman olíuúrgangi
við PCB og PCT og önnur spilliefni, sbr. reglugerð um innflutning, notkun og
förgun PCB, PCT og umhverfisskaðlegra staðgengilsefna þeirra og reglugerð um
spilliefni.
7.3 Olíuúrgang sem inniheldur meira en
0,005% af PCB eða PCT skal meðhöndla sem spilliefni sem inniheldur PCB eða PCT
nema þegar hægt er að eyða PCB eða PCT eða draga svo úr magni þeirra með
endurmyndun að olían innihaldi ekki efnin umfram tilgreint hámark, sbr. ákvæði
reglugerðar þessarar. Að öðru leyti fer um olíuúrgang sem inniheldur meira en
0,005% af PCB eða PCT í samræmi við reglugerð um innflutning, notkun og förgun
PCB, PCT og umhverfisskaðlegra staðgengilsefna þeirra.
7.4
Þar sem verður til, er safnað, flutt og/eða fargað meira en 400 lítrum
af olíuúrgangi á ári, ber að halda dagbók yfir magn, ástand, uppruna og
geymslustað úrgangsolíunnar, móttöku, afhendingu og/eða förgun. Skylt er að
afhenda eftirlitsaðila allar þær upplýsingar um söfnun og förgun olíuúrgangs
eða um leifar hans sem falla til.
Endurmyndun, förgun og brennsla.
8. gr.
8.1 Stefnt skal að endurmyndun eða annarri
endurnýtingu olíuúrgangs. Tryggja skal að við meðhöndlun olíuúrgangs séu gerðar
viðeigandi ráðstafanir til að vernda umhverfið og heilsu manna. Tryggt skal að
endurmynduð olía innihaldi ekki spilliefni eða sé menguð af þeim, á þann hátt,
í því magni eða af þeim styrkleika að það fari umfram leyfileg mörk fyrir
viðkomandi efni samkvæmt reglugerð þessari.
8.2 Ef olíuúrgangur er brenndur skal
tryggja að það sé við aðstæður sem uppfylla ákvæði reglugerðar þessarar eða
reglugerðar um brennslu spilliefna enda sé brennslan tæknilega framkvæmanleg og
hagkvæm.
8.3 Ef olíuúrgangur er endurmyndaður skal
tryggja að ekki hljótist af mengun. Efnaleifum vegna endurmyndunar skal fargað
í samræmi við reglugerð um spilliefni.
8.4 Grunnolía má ekki innihalda PCB eða PCT
í meira magni en 0,005% og má ekki flokkast sem spilliefni.
Nýting olíuúrgangs sem eldsneytis.
9. gr.
9.1 Þegar olíuúrgangur er notaður til
eldsneytis skal halda loftmengun í lágmarki, sérstaklega af völdum efna sem eru
tilgreind í viðauka.
9.2 Olíuúrgangur sem notaður er sem
eldsneyti má ekki innihalda önnur spilliefni umfram leyfileg mörk fyrir
viðkomandi efni eða ákvæði í starfsleyfi. Olíuúrgangurinn má ekki innihalda PCB
eða PCT í meiri styrk en sem nemur 0,005%. Efnaleifum frá brennslu olíuúrgangs
skal farga í samræmi við reglugerð um spilliefni. Sjá að öðru leyti reglugerð
um innflutning, notkun og förgun PCB, PCT og umhverfisskaðlegra staðgengilsefna
þeirra.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
Starfsleyfisskylda.
10. gr.
10.1 Atvinnurekstur sem sér um einstaka
þætti meðhöndlunar olíuúrgangs skal hafa starfsleyfi.
10.2 Starfsleyfisskylda á ekki við um
flutninga hjá aðila í atvinnurekstri sem sér sjálfur um að flytja olíuúrgang
sem fellur til hjá honum ef magnið á ári er ekki meira en 400 l að undanteknum úrgangi sem inniheldur PCB
eða PCT, sbr. 7. gr. Starfsleyfisskylda
á ekki við um meðhöndlun olíuúrgangs innan olíubirgðastöðva, sbr. ákvæði
reglugerðar um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi.
Efni starfsleyfis o.fl.
11. gr.
11.1 Í starfsleyfum þeirra sem
meðhöndla olíuúrgang skulu vera ákvæði um gerð og magn hans, tæknikröfur, varúðarráðstafanir,
förgunarstað og förgunaraðferðir. Þá skulu í starfsleyfum vera, eftir því sem
þörf er á, ákvæði um skiljur, gildrur, þrær og annan búnað til að tryggja að
olíuúrgangur dreifist ekki frá myndunar- eða söfnunarstað.
11.2 Starfsleyfisskyldir aðilar skulu
fylgjast með og sjá til að olíuskiljur virki sem skyldi og láta tæma þær
reglulega svo og annan búnað sem fangar olíur.
11.3 Starfsleyfisskyldir aðilar sem stunda
starfsemi þar sem olíuúrgangur myndast skulu halda skrár um magn, gerð, eðlis-
og efnafræðilega eiginleika og uppruna efnanna, og förgunarstaði ásamt
upplýsingum um dagsetningar móttöku og förgunar, sjá þó ákvæði 4. mgr. 7. gr.
Fargi eða endurnýti starfsleyfisskyldur aðili olíu sem myndast hjá honum skal
hann einnig halda skrá yfir hvernig henni er fargað. Hollustuvernd ríkisins
gefur út leiðbeiningar um framkvæmd skráningarinnar.
Áætlanir og skýrslugerð.
12. gr.
12.1 Um áætlanir og skýrslugerð er fjallað
í reglugerð um úrgang.
V. KAFLI
Aðgangur að upplýsingum, þvingunarúrræði, viðurlög o.fl.
Aðgangur að upplýsingum
13. gr.
13.1 Um aðgang að upplýsingum fer
samkvæmt lögum um upplýsingamiðlun og aðgang að upplýsingum um umhverfismál nr.
21/1993, upplýsingalögum nr. 50/1996 og lögum um hollustuhætti og
mengunarvarnir nr. 7/1998.
Þagnarskylda eftirlitsaðila.
14. gr.
14.1 Eftirlitsaðilar og aðrir sem starfa
samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem
varða framleiðslu- og verslunarleynd. Sama gildir um atriði sem þeir fá
vitneskju um og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan
helst þótt látið sé af starfi.
14.2 Upplýsingar og tilkynningar
eftirlitsaðila til fjölmiðla skulu vera efnislega rökstuddar og þess gætt að
einstakar atvinnugreinar, stofnanir eða fyrirtæki bíði ekki tjón og álitshnekki
að óþörfu.
Valdsvið og þvingunarúrræði.
15. gr.
15.1 Til að knýja á um ráðstafanir samkvæmt
reglugerð þessari skal fylgja þeim þvingunarúrræðum sem mælt er fyrir um í IX.
kafla reglugerðar um mengunarvarnaeftirlit þegar við á. Annars gilda ákvæði VI. kafla laga um
hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 um valdsvið og þvingunarúrræði.
Viðurlög.
16. gr.
16.1 Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar
varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Sé
um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða fangelsi
allt að fjórum árum.
16.2 Sektir má ákvarða lögaðila þó að sök
verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga
sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta
fyrir lögaðilann.
VI. KAFLI
Lagastoð, gildistaka o.fl.
17. gr.
17.1 Reglugerð þessi er sett samkvæmt
ákvæðum 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og lögum
nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, einkum 9. og 10. gr. laganna. Þá er
reglugerðin sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga hvað
varðar skyldur sveitarfélaga, sbr. ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 7/1998.
17.2 Reglugerðin er sett með hliðsjón af
26. tölul. XX. viðauka EES-samningsins (tilskipun ráðsins nr. 75/439/EBE, sbr.
87/101/EBE).
17.3 Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytinu, 29. október 1999.
Siv Friðleifsdóttir.
Magnús Jóhannesson.
VIÐAUKI
Losunarmörk vegna brennslu olíuúrgangs.
Losunarmörk1) fyrir útstreymi
tiltekinna efna sem falla til við brennslu olíuúrgangs.
Mengunarefni | Losunarmörk
mg/Nm3 |
Cd
Ni
Cr
Cu
V
Pb
Cl2)
F 3)
SO2 4)
Ryk (alls) 4) | 0,5
1
5
100
5
-
- |
1) Þessi losunarmörk, sem ekki má fara yfir þegar olíuúrgangur er brenndur, gefa til kynna massa áðurnefndra efna í afgasi, miðað við rúmmál afgass í stöðluðu ástandi (hiti 273 K, þrýstingur 101,3 kPa), eftir að dregið hefur verið frá innihald vatnsgufu og 3% innihald súrefnis í afgasi miðað við rúmmál.
Ef um er að ræða efni sem tilgreind eru hér fyrir framan og geta að auki stafað frá hitun framleiðslunnar skal tryggt með innra eftirliti að hlutfall þessara efna sem stafa frá brennslu olíuúrgangs fari ekki yfir losunarmörkin. Súrefnisinnihald skal miðast við venjulegar starfsaðstæður við vinnsluna sem um ræðir.
2) Ólífræn klórsambönd í loftkenndu ástandi sýnd sem vetnisklóríð.
3) Ólífræn flúorsambönd í loftkenndu ástandi sýnd sem vetnisflúoríð.
4) Sjá reglugerð um brennisteinsdíoxíð og svifryk í andrúmslofti.
Word útgáfa af reglugerð