Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

803/2008

Reglugerð um Íþróttasjóð.

1. gr.

Framlög úr Íþróttasjóði má veita til eftirtalinna verkefna:

  1. Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar.
  2. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna og skal einkum lögð áhersla á að styrkja verkefni sem uppfylla einhver eftirtalinna skilyrða:

    1. stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga,
    2. efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarfi,
    3. auka gildi íþróttastarfs í forvörnum,
    4. auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu.
  3. Verkefna á sviði íþróttarannsókna í þeim tilgangi að auka þekkingu á íþróttum. Við mat á umsóknum um styrk til slíkra verkefna skal fyrst og fremst farið eftir fræðilegu og hagnýtu gildi þeirra. Heimilt er að styrkja rannsóknar- og þróunarverkefni á sviði íþróttafræða og stoðgreina þeirra, s.s. líffræði, heilsufræði og samfélagsfræði, enda sé markmið þeirra að styrkja fræðilegar undirstöður íþróttastarfs í landinu.
  4. Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

2. gr.

Menntamálaráðuneyti skal árlega auglýsa eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Í auglýsingu skal koma fram hvert verksvið sjóðsins er sbr. 1. gr. Umsóknir skulu berast íþróttanefnd á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 1. október ár hvert. Í umsókn skulu m.a. koma fram upplýsingar um:

  1. heiti verkefnis,
  2. markmið,
  3. fræðilegt og hagnýtt gildi verkefnis, eftir því sem við á,
  4. verk- og tímaáætlun,
  5. kostnaðar- og fjármögnunaráætlun,
  6. samstarfsaðila, eftir því sem við á.

Sé sótt um frekari stuðning við verkefni, sem áður hefur hlotið styrk úr Íþróttasjóði, ber umsækjanda að láta fylgja umsókn áfangaskýrslu um stöðu verkefnisins.

3. gr.

Íþróttanefnd metur umsóknir og gerir tillögu til menntamálaráðherra um úthlutun úr sjóðnum. Nefndin skal haga starfi sínu í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Við mat á umsóknum skal m.a. tekið tillit til notagildis verkefnanna í almannaþágu og til eigin fjármögnunar umsækjenda.

Íþróttanefnd er heimilt að leita álits þar til bærra sérfræðinga á umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði.

Upplýsingar um styrkveitingar skal birta á vefsíðu menntamálaráðuneytisins.

Við úthlutun styrkja til verkefna, sbr. 5. gr. er íþróttanefnd heimilt að binda útborgun styrks skilyrði um að skýrslu um framkvæmd og fjárhagslegt uppgjör eldra verkefnis hafi verið skilað.

4. gr.

Þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir sendir íþróttanefnd styrkþega tilkynningu um að styrkur hafi verið veittur og hvernig útborgun hans verður háttað. Styrkur vegna aðstöðu, útbreiðslu- og fræðsluverkefna og vegna íþróttarannsókna sbr. 1.-3. tl. 1. gr., greiðist þegar beiðni um útborgun hans hefur borist til íþróttanefndar.

Um greiðslu vegna verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga fer eftir verklagsreglum menntamálaráðuneytis.

Styrkveiting úr Íþróttasjóði felur ekki í sér skuldbindingu um frekari styrkveitingar til sama verkefnis síðar.

5. gr.

Þeir sem hljóta styrki úr Íþróttasjóði sbr. 1.-4. tl. 1. gr. skulu skila skýrslu um framkvæmd og fjárhagslegt uppgjör verkefnis til íþróttanefndar eigi síðar en einu ári eftir að styrkur var samþykktur af ráðherra. Verði breyting á verkáætlun skal styrkþegi leita samþykkis íþróttanefndar fyrir því að ráðstafa styrknum.

6. gr.

Sé styrks ekki vitjað innan árs frá því að ráðherra samþykkir úthlutun úr sjóðnum fellur hann niður og rennur til Íþróttasjóðs að nýju.

7. gr.

Kostnaður við störf íþróttanefndar skal greiddur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins.

8. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. gr. íþróttalaga nr. 64/1998, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 188/1999, um Íþróttasjóð.

Menntamálaráðuneytinu, 29. júlí 2008.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Guðmundur Árnason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.