Fjármálaráðuneyti

791/2007

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um almanntryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum) (X). - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 77/2005 frá 13. janúar 2005 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2005 frá 30. september 2005 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sam­eiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerðin (EB) nr. 77/2005 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmála­ráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysis­tryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldra­orlof. Í reglugerð frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildis­töku þess hluta sem fjallar um réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 77/2005 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2005 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 66, 22. desember 2005, bls. 11, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðis- og trygginga­mála­ráðuneytisins nr. 790/2007.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyris­réttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 20. ágúst 2007.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingvi Már Pálsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica