Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

782/2004

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um almannatryggingar
(atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi) (VII).

1. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 410/2002 frá 27. febrúar 2002 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 572/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og fjölskyldum þeirra sem flytjast milli aðildarríkja sem vísað er til í VI. viðauka (félagslegt öryggi) við Samninginn um evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2003 frá 16. maí 2003, skal öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði hennar lúta að atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerðin (EB) nr. 410/2002 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu nr. 781/2004 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu nr. 777/2004 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar.


2. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 410/2002 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2003, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 39, 31. júlí 2003, bls. 11, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins nr. 777/2004.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 29. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, öðlast þegar gildi.


Félagsmálaráðuneytinu, 20. september 2004.

F. h. r.
Ragnhildur Arnljótsdóttir.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

    nr_782_2004.doc

 

Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dmr.stjr.is
Prentvænt