Hoppa beint í ađalvalmynd
Stjórnarráđiđ  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alţingi  |
 
Stjórnarráđ Íslands    
  Forsíđa  
 

  Reglugerđir

međ breytingum
eftir ráđuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

774/1998
Reglugerđ

Reglugerđ

um sérsveit ríkislögreglustjórans.

1. gr.

Ríkislögreglustjórinn annast viđfangsefni sem eđli máls samkvćmt eđa ađstćđna vegna kalla á miđstýringu eđa samhćfingu lögregluliđa á landsvísu. Hann skal starfrćkja sérsveit lögreglu til ađ takast á viđ vopnuđ lögreglustörf og öryggismál ţegar ţörf krefur hvar sem er á landinu og innan efnahagslögsögu Íslands.

2. gr.

Allt forrćđi sérsveitar lögreglunnar er hjá ríkislögreglustjóranum svo sem starfrćksla, stćrđ, búnađur, ţjálfun, rekstur og stefnumótun um verkefni og vinnuađferđir.

Ríkislögreglustjórinn skal setja verklagsreglur um starfsemi sveitarinnar.

3. gr.

Dómsmálaráđherra felur ríkislögreglustjóranum ađ fara međ lögreglustjórn ţar sem sérsveit lögreglunnar er kölluđ út vegna vopnađra lögreglustarfa og öryggismála. Viđ störf sín lýtur sérsveitin yfirstjórn ríkislögreglustjórans.

4. gr.

Heimilt er ađ starfrćkja sveitina međ ţeim hćtti ađ stjórnendur hennar starfi hjá ríkislögreglustjóranum í fullu starfi en ađrir lögreglumenn í henni komi til starfa frá öđrum lögregluliđum vegna ţjálfunar eđa verkefna hverju sinni.

5. gr.

Reglugerđ ţessi sem sett er samkvćmt 3. mgr. 7. gr. lögreglulaga nr. 90 13. júní 1996 öđlast gildi 1. janúar 1999.

Dóms- og kirkjumálaráđuneytinu, 21. desember 1998.

Ţorsteinn Pálsson.

Björg Thorarensen.

 

 

Word útgáfa af reglugerđ
- 774-1998.doc

 
Stjórnartíđindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvćnt