Heilbrigðisráðuneyti

760/2009

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 236/2009 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum. - Brottfallin

1. gr.

2. mgr. 4. gr. orðast svo:

Sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu hagkvæmustu pakkninga í lyfjaflokknum C 09 lyf með verkun á renínangíótensín kerfið. Hagkvæmustu pakkningar eru metnar út frá verði á einingu í pakkningu og þær pakkningar B-merktar sem víkja ekki meir en 150% frá ódýrasta einingaverði í óblönduðum lyfjum með einu virku innihaldsefni, en 10% í blönduðum lyfjum með a.m.k. tveimur virkum innihaldsefnum. Sjúkratryggingar taka ekki þátt í greiðslu annarra lyfja í lyfjaflokki C 09 en er þó heimilt að gefa út lyfja­skírteini, sbr. 2. tölul. 11. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 25. gr., 1. mgr. 29. gr., og 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. október 2009.

Ákvæði til bráðabirgða.

Lyfjaávísanir á þau lyf sem fá breytta greiðsluþátttöku samkvæmt 1. gr. og gefnar eru út fyrir gildistöku reglugerðar þessarar, halda óbreyttri greiðsluþátttöku til allt að 1. janúar 2010.

Heilbrigðisráðuneytinu, 28. ágúst 2009.

Ögmundur Jónasson.

Berglind Ásgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica