Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

752/2017

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 106/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2017, frá 7. júlí 2017, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1843 frá 18. október 2016 um umbreytingarráðstafanir vegna beitingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar faggildingu opinberra rannsóknarstofa sem annast opinberar próf­anir vegna tríkínu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48, frá 3. ágúst 2017, bls. 96.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og heldur gildi sínu til loka árs 2020.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. ágúst 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica