REGLUGERÐ
um störf
prófnefndar mannvirkjahönnuða.
I. kafli
Prófnefnd.
1. gr.
Umhverfisráðherra skipar nefnd, prófnefnd mannvirkjahönnuða
til fjögurra ára í senn. Í nefndinni eiga sæti þrír menn og jafn margir
varamenn, allir sérfróðir um byggingarmálefni. Nefndin skiptir með sér verkum,
ennfremur getur hún ráðið sér starfsmann.
Kostnaður vegna nefndarinnar skal borinn af staðfestingar-,
kennslu- og prófgjöldum.
2. gr.
Hlutverk prófnefndar er að hafa umsjón með og ákveða
tilhögun námskeiða fyrir væntanlega mannvirkjahönnuði, þ.m.t. að ákveða
námsgreinar og prófkröfur, semja kennsluskrá, útbúa kennsluefni og ráða
leiðbeinendur. Nefndin getur falið öðrum aðila námskeiðahaldið.
3. gr.
Prófnefnd heldur gerðabók. Í hana skal færa ákvarðanir
nefndarinnar og niðurstöður prófa.
II. kafli
Námskeið og próf.
4. gr.
Eftirfarandi mannvirkjahönnuðir geta sótt námskeið og
gengist undir próf samkvæmt reglugerð þessari:
Arkitektar, byggingarfræðingar, tæknifræðingar,
verkfræðingar, rafiðnfræðingar, innanhúshönnuðir og landslagshönnuðir sem
hlotið hafa heimild iðnaðarráðherra til starfsheita í tækni- og
hönnunargreinum.
5. gr.
Námskeið skal að jafnaði halda ár hvert. Skal það auglýst
rækilega s.s. í dagblöðum. Prófnefnd ákveður það efni sem prófað er úr og
hvernig því efni er skipt á milli námshluta. Til grundavallar ákvörðun sinni
hefur prófnefnd til hliðsjónar að væntanlegir mannvirkjahönnuðir skuli búa yfir
þekkingu í eftirfarandi greinum:
Tilteknum atriðum í skipulags- og byggingarlögum og
reglugerðum settum samkvæmt þeim, tilteknum stöðlum og notkun þeirra og
skráningu fasteigna samkvæmt lögum um fasteignamat.
Heimilt er prófnefnd að færa námsgreinar á milli hluta svo
og að bæta greinum við námshluta eða fækka þeim.
6. gr.
Prófnefnd er heimilt að veita þátttakanda, sem um það
sækir, undanþágu frá því að þreyta tiltekinn hluta prófs. Skilyrði slíkrar
undanþágu er að þátttakandi framvísi vottorði frá viðurkenndri menntastofnun um
að hann hafi staðist sambærilegar námskröfur og gerðar eru til þátttakenda á
námskeiðinu, að mati prófnefndar.
7. gr.
Próf skulu haldin innan mánaðar eftir að námskeiði er
lokið. Skal próftími vera 4 klukkustundir og vægi einstakra þátta námsefnisins
tilkynnt a.m.k. 7 virkum dögum fyrir próf. Til að standast próf skal
þátttakandi hljóta einkunnina 5,0 úr hverjum þætti námsefnisins og að lágmarki
6,0 í samanlagðri meðaleinkunn. Gefa skal einkunnir með einum aukastaf.
8. gr.
Prófnefnd er skylt að gangast fyrir sjúkraprófi hafi þátttakandi
ekki getað sótt próf vegna veikinda. Skal hann framvísa læknisvottorði vegna
veikindanna.
Prófnefnd er heimilt að halda sérstakt upptökupróf fyrir þá
þátttakendur sem ekki ná tilskilinni lágmarkseinkunn. Ef slíkt próf er ekki
haldið er þeim heimilt að þreyta próf úr viðkomandi þáttum námsefnisins, næst
þegar próf eru haldin.
III. kafli
Námskeiðagjöld o.
fl.
9. gr.
Umhverfisráðherra ákveður að fenginni tillögu prófnefndar
námskeiðagjöld. Þau skiptast í staðfestingargjald, kennslugjald og prófgjald.
Staðfestingargjald greiðir þátttakandi er hann skráir sig á
námskeiðið og er það óafturkræft þótt hann hætti við þátttöku.
Kennslugjald greiðir þátttakandi eigi síðar en 7 virkum
dögum eftir að kennsla hefst. Kennslugjald endurgreiðist vegna brottfalls úr
námskeiði ef sérstakar ástæður mæla með.
Prófgjald greiðir þátttakandi eigi síðar en 7 virkum dögum
fyrir próf. Skal þátttaka óheimil í prófi nema hann hafi staðið skil á
prófgjaldi.
Er það óafturkræft þótt þátttakandi þreyti ekki prófið.
Þeir er fengið hafa undanþágu frá prófi í einstökum þáttum
námsefnisins skulu greiða hlutfallslegt prófgjald.
Við ákvörðun námskeiðagjalda skal miða við að nemendur
greiði allan kostnað af námskeiði og prófi.
10. gr.
Prófnefnd skal fjalla um umsókn mannvirkjahönnuðar um
löggildingu áður en hún er veitt.
11. gr.
Ákvæði reglugerðar þessarar hrófla ekki við eldri rétti
hönnuða til þess að leggja teikningar fyrir bygginganefnd.
Þeir aðilar sem taldir eru upp í 4. gr. og við gildistöku
reglugerðarinnar hafa lokið hluta reynslutíma sem nauðsynlegur er samkvæt
byggingarlögum nr. 54/1978, með síðari breytingum, til að öðlast löggildingu
skulu eiga kost á að ljúka honum eftir eldri reglum.
12. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 48. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 með breytingu nr. 135/1997 og öðlast gildi 1. janúar
1998.
Umhverfisráðuneytinu,
29. desember 1997.
Guðmundur
Bjarnason.
Ingimar Sigurðsson.
Word útgáfa af reglugerð