|
|
746/2003
felld brott með rg. nr. 711/2009
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um skipun starfsgreinaráða nr. 475/2001.
1. gr. Eftirfarandi breytingar verði á 2. gr.:
Stafliður m orðist svo:
Fjármála- og verslunargreinum.
2. gr. Eftirfarandi breytingar verði á 5. gr.:
1) 9. mgr. orðist svo:
Starfsgreinaráð rafiðngreina: 3 fulltrúar tilnefndir af Rafiðnaðarsambandi Íslands og 3 fulltrúar tilnefndir af Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði.
2) 11. mgr. orðist svo:
Starfsgreinaráð uppeldis- og tómstundagreina: 2 fulltrúar tilnefndir af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 1 fulltrúi tilnefndur af Starfsgreinasambandi Íslands, 2 fulltrúar tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og 1 fulltrúi tilnefndur af félagsmálaráðuneytinu.
3) 14. mgr. orðist svo:
Starfsgreinaráð snyrtigreina: 1 fulltrúi tilnefndur af Samiðn, 1 fulltrúi tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins og 2 fulltrúar tilnefndir af Félagi íslenskra snyrtifræðinga.
3. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996 og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 1. október 2003.
Tómas Ingi Olrich. Guðmundur Árnason.
Stofnreglugerð: 475/2001 - Reglugerð um skipun starfsgreinaráða.
|