REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 391/1998, um
skyldutryggingu
lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
1. gr.
Við 19. gr. bætist nýr málsliður
sem orðast svo: Þegar um er að ræða lífeyrissjóð sem fellur undir 54. gr. laga
nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og
lífeyrisréttindi miðast við kaupgjald skal þó heimilt að nota 3% vaxtaviðmiðun
enda hafi sjóðfélögum verið gefinn kostur á aðild að nýju réttindakerfi fyrir
1. júlí 1998.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með
stoð í lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi
lífeyrissjóða öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 17. desember 1998.
F. h. r.
Magnús Pétursson.
Áslaug Guðjónsdóttir.
Word útgáfa af reglugerð