|
|
741/2003
felld brott með rg. nr. 921/2012
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 285/2002 um aukefni í matvælum,
sbr. reglugerð nr. 658/2002.
1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á kafla A-1 í viðauka II reglugerðarinnar:
a. Við aukaefnaflokkinn 4.1.1 bætist eftirfarandi efni:
 | Askorbinsýra og askorböt (E 300-302) | ü |
 | Sítrónusýra (E 330) | ï |
 |  | ý GFH |
 |  | þ |
b. Við aukaefnaflokkinn 4.1.3 bætist eftirfarandi efni:
 | Askorbinsýra og askorböt (E 300-302) | ü |
 | Sítrónusýra (E 330) | ï |
 |  | ý GFH, Aðeins í flysjaðar |
 |  | ï kartöflur |
 |  | þ |
c. Eftirfarandi efni fellur brott úr aukaefnaflokknum 9.4.1:
 | Nítröt (E 251-252) | (Alls 250 mg/kg í saltaðar, |
 |  | reyktar eða niðurlagðar kjötvörur) |
2. gr. 2. tölul. 2. mgr. 18 gr. reglugerðarinnar hljóðar svo:
3. tölul. tilskipunar 65/66/EBE um sérstök skilyrði um hreinleika rotvarnarefna sem heimilt er að nota í matvæli með síðari breytingum, 16. tölul. tilskipun 78/663/EBE um sérstök hreinleikaskilyrði fyrir ýru-, bindi-, þykkingar- og hleypiefni til notkunar í matvælum með síðari breytingum, 17. tölul. tilskipun 78/664/EBE um sérstök hreinleikaskilyrði fyrir þráavarnarefni sem heimilt er að nota í matvæli með síðari breytingum, 29. tölul. tilskipunar 81/712/EBE um greiningaraðferðir innan bandalagsins til staðfestingar á að tiltekin aukefni sem notuð eru í matvælum fullnægi skilyrðum um hreinleika, 46. tölul. tilskipunar 95/31/EB um hreinleikaskilyrði fyrir sætuefni sem ætluð eru til notkunar í matvælum með breytingum 98/66/EB, 2000/51/EB og 2001/52/EB, tilskipun 95/45/EB um hreinleikaskilyrði fyrir litarefni, með breytingum 99/75/EB og 2001/50/EB og tilskipun 2002/82/EB um hreinleikaskilyrði fyrir aukefni önnur en litar- og sætuefni.
3. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli samanber og lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum. Reglugerðin er sett með hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka (tilskipun nr. 95/2/EB um aukefni í matvælum önnur en litarefni og sætuefni). Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytinu, 30. september 2003.
F. h. r.
Halldór Þorgeirsson. Sigríður Auður Arnardóttir.

Stofnreglugerð: 285/2002 - Reglugerð um aukefni í matvælum.
|