Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

738/2009

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um öryggisstjórnun skipa, nr. 337/2009.

1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður b, sem orðast svo:

 b.Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 540/2008 frá 16. júní 2008 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 um að hrinda í framkvæmd ákvæðum alþjóðlega kóðans um öryggisstjórnun skipa innan Bandalagsins að því er varðar snið eyðublaða, sem vísað er til í 56u í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2008 frá 7. nóvember 2008 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 540/2008 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, frá 9. júlí 2009, bls. 237 og verður hluti af reglugerð þessari.


2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 17. gr. laga nr. 76/2001 um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Samgönguráðuneytinu, 12. ágúst 2009.

Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.

B_nr_738_2009.doc

Stofnreglugerð:
337/2009 - Reglugerð um öryggisstjórnun skipa.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt