REGLUGERÐ
um starfsemi fjarskiptafyrirtækja
með staðfestu
í ríki utan Evrópska
efnahagssvæðisins.
1.
gr.
Fyrirtæki með staðfestu í aðildarríki Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar en
utan Evrópska efnahagssvæðisins getur starfrækt fjarskiptanet og veitt fjarskiptaþjónustu
hér á landi að fullnægðum skilyrðum III. kafla fjarskiptalaga.
2.
gr.
Ákvæði XVI. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, um útibú erlendra
hlutafélaga skulu eiga við um útibú og umboðsskrifstofu erlends félags sem
rekur fjarskiptanet eða veitir fjarskiptaþjónustu hér á landi samkvæmt þessari
reglugerð. Hið sama gildir um XVI. kafla laga um einkahlutafélög nr. 138/1994
um útibú erlendra einkahlutafélaga.
3.
gr.
Í umsókn erlends fyrirtækis um heimild til reksturs fjarskiptaþjónustu
eða fjarskiptanets skulu koma fram upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi hér á
landi, sbr. 5. gr. laga nr. 107/1999 um fjarskipti. Póst- og fjarskiptastofnun
getur krafist frekari upplýsinga m.a. varðandi eignaraðild og fjárhagsstöðu ef
þörf er á rekstrarleyfi fyrir starfsemina.
4.
gr.
Í almennri heimild eða rekstrarleyfi erlends fyrirtækis skal tilgreina
starfsskilyrði. Þau skulu vera hin sömu og fjarskiptafyrirtækja sem hlotið hafa
starfsleyfi og höfuðstöðvar hafa hér á landi. Með starfsskilyrðum er átti við
að starfsemin skal lúta íslenskum lögum og lögsögu, svo sem skattalögum, lögum
um stjórn efnahagsmála, löggjöf um neytendamálefni, svo og samkeppnislögum.
Öll lögskipti sem leiða af rekstri fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu
hér á landi lúta íslenskum lögum og lögsögu.
5.
gr.
Vegna útibús og umboðsskrifstofu erlends fjarskiptafyrirtækis skal færa
sérstakt bókhald vegna starfseminnar hér á landi.
6.
gr.
Svipti Póst- og fjarskiptastofnun erlent fyrirtæki rekstrarheimild skal
útibú þess eða umboðsskrifstofa hér á landi lögð niður.
7.
gr.
Verði erlent fyrirtæki gjaldþrota, því slitið eða lagt niður með öðrum
hætti skal, þegar í stað og í síðasta lagi innan fjórtán daga, tilkynna um það
til Póst- og fjarskiptastofnunar og eftir atvikum hlutafélagaskrár eða
firmaskrár.
8.
gr.
Reglugerð þessi sem er sett samkvæmt heimild í 4. gr. fjarskiptalaga
nr. 107/1999, öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 19. september 2000.
Sturla Böðvarsson.
Ragnhildur
Hjaltadóttir.
Word útgáfa af reglugerð